Lífið

Seldist upp á Ricky Gervais á nokkrum mínútum: Aukasýning strax farin í sölu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Almenn sala á Ricky Gervais í Hörpu 20. apríl hófst í morgun kl. 10 og eins og við var að búast ruku miðarnir út á ógnarhraða og varð uppselt svo til samstundis.

Því hefur hefur verið ákveðið að halda aukasýningu daginn eftir, föstudaginn 21. apríl.

Miðasala er hafin nú þegar á aukasýninguna. Þeir sem voru í rafrænni biðröð fyrir fyrri sýninguna flytjast sjálfkrafa í biðröð fyrir nýju sýninguna. 

Sem fyrr eru eingöngu hægt að kaupa 6 miða í einu til að tryggja góða dreifingu á þeim miðum sem í boði eru.

Uppfært klukkan 10:52 - Uppselt er á báðar sýningar. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×