Lífið

Seinni undanúrslit: Lögin kynnt til leiks

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Ísland er tólfta á svið í seinni undanúrslitum Eurovision sem fram fara í kvöld.
Ísland er tólfta á svið í seinni undanúrslitum Eurovision sem fram fara í kvöld. visir/eurovisiontv
Ísland er tólfta á svið í seinni undanúrslitum Eurovision sem fram fara í kvöld. Alls etja sautján lönd kappi og komast tíu þeirra áfram. Helmingur atkvæða ræðst í símakosningu en hinn helmingurinn af atkvæðum dómnefndanna. Dómararennslið fór fram í gær og var gærkvöldið því afar mikilvægt fyrir íslenska hópinn.

Litháen

Monika Linkyte og Vaidas Baumila

This time

Monika og Vaidas tóku bæði þátt í undankeppni Eurovision í sínu heimalandi, með sitt hvort lagið. Þau komust bæði í úrslit en svo fór að Vaidas sigraði í keppninni. Ákvörðun var í kjölfarið tekin um að Vaidas og Monika myndu bæði syngja framlag Litháens, við mikinn fögnuð Litháena. Vaidas hafnaði í þriðja sæti í undankeppninni í fyrra en Monika hefur reynt að komast í keppnina á hverju ári frá árinu 2010. Draumur þeirra rættist loks í ár.

Írland

Molly Sterling


Playing with numbers

Molly er sautján ára tónlistarkona frá Tipperary sýslu sem nú er búsett í Dublin. Ellefu ára kenndi hún sér sjálfri á píanó og hefur síðan þá verið í tónlist. Hún segir fátt gleðja sig eins mikið og sönginn og segist afar þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í Eurovision. Hún vonast til að keppnin muni opna fyrir sér fleiri dyr.

Molly segir frá því í samtali við Eurovision TV að hún elski hunang og að hún eigi fimmtugan asna. Hún flytur lagið Playing with numbers fyrir hönd Írlands, en Írar hafa sjö sinnum unnið keppnina. 

San Marino

Anita Simoncini & Michele Perniola

Chain of lights

Anita og Michele eru einungis sextán ára og því yngsti dúett sem tekið hefur þátt í Eurovision. Þau hafa bæði tekið þátt t í yngri útgáfu af Eurovision, eða Junior Eurovision Song Contest. Anita er frá San marino en Michele frá Ítalíu.

Svartfjallaland

Knez

Adio

Knez er afar vinsæll tónlistarmaður í Svartfjallalandi og í raun á Balkanskaganum öllum. Hann hefur gefið út tíu plötur og vinnur nú að þeirri elleftu. Hann syngur lagið Adio, sem þýðir bless, á svartfellsku en það er stöðluð mállýska serbó-króatísku og opinbert tungumál Svartfjallalands,



Malta

Amber

Warrior



Þrátt fyrir að Amber sé ekki nema 23 ára hefur hún tekið þátt í undankeppni Eurovision fimm sinnum. Hún hefur þó einu sinni farið út sem bakrödd en það var í Baku árið 2012. Draumur hennar rættist loks í ár og flytur hún lagið Warrior fyrir hönd Möltu. Framlag Georgíu heitir einnig Warrior en það var flutt síðasta þriðjudag og er komið í aðalkeppnina.

Noregur

Mørland & Debrah Scarlett

A monster like me

Mørland og Debrah kynntust í byrjun nóvember í fyrra. Hann sendi henni smáskilaboð þess efnis að hann væri að vinna að lagi og vildi fá hana til liðs við sig. Hún samþykkti það og úr varð kraftmikið lag sem spáð er góðu gengi í keppninni. Mørland hefur búið í Bretlandi í lengri tíma og Debrah í Sviss bróðurpart ævi sinnar. Myndbandið við lagið þeirra hefur verið heldur umdeilt en þau hyggjast þó ekki færa söguþráðinn yfir á stóra sviðið.



Portúgal

Leonor Andrade

Há Um Mar Que Nos Separa

Leonor er 21 árs. Hún byrjaði að læra á píanó fjögurra ára gömul og hóf tónlistarferil sinn af alvöru í The Voice þar komst hún í undanúrslit. Hún keppti í kjölfarið í undankeppni Eurovision og vann. Leonor segir langþráðan draum rætast með þátttöku sinni í Eurovision.



Tékkland

Marta Jandová and Václav Noid Bárta

Hope never dies

Marta syngur með hljómsveitinni Die Happy, sem er vel þekkt í Tékklandi og Þýskalandi. Václav er söngvari, lagahöfundur og leikari sem spilar á píanó, flautu, klarinett, gítar, bassa og trommur. Hæfileikaríkur sá.



Ísrael

Nadav Guedj

Golden boy

Nadav er ekki nema sextán ára, fæddur í Frakklandi og fluttist síðan til Ísraels. Hann sigraði í hæfileikakeppninni The next star en verðlaunin fyrir það voru að fara í Eurovision. Nadav segir að með laginu sé hann að fagna frelsinu í Tel Aviv. Hann endar lagið á því að segja „Okei, ég verð að hætta, þrjár mínútur. Bæbæ.”



Lettland

Aminata

Love injected

Aminata er sjónvarpsstjarna í Lettlandi. Hún hefur einu sinni tekið þátt í undankeppninni en sigraði hana í ár. Hún semur sín eigin lög og spilar á flautu en segist alltaf hafa dreymt um að verða söngkona. Aminata segist ekki geta talað við neinn áður en hún fer á svið og lokar sig því vanalega af í lokuðu, myrku rými.



Aserbaijan

Elnur Huseynov

Hour of the wolf

Elnur hefur áður tekið þátt í Eurovision, nánar tiltekið árið 2008 með laginu Day after day. Atriðið þótti hið furðulegasta en hafnaði þó í áttunda sæti. Skilaboðin sem hann vill senda með framlagi sínu eru: „Við þurfum að berjast fyrir hamingju okkar. Við eigum það skilið,“ eins og hann orðaði það sjálfur. 



Ísland

María Ólafsdóttir


Unbroken

Maríu Ólafsdóttur þarf vart að kynna en hún er tólfta á svið í kvöld. Hún er 22 ára söng- og leikkona sem hefur látið mikið að sér kveða undanfarin ár. Henni er spáð ágætis gengi af blaðamönnum víða í Evrópu og veðbönkum. Flestir spá því að hún komist upp úr undankeppninni í kvöld. María var í nærmynd í Íslandi í dag í gær en innslagið má sjá hér.



Svíþjóð

Måns Zelmerlöw 


Heroes 

Måns hefur gert þrjár tilraunir til þess að fá að taka þátt í Eurovision en það tókst loks í ár. Hann hefur verið nokkuð á milli tannanna á fólki; lagið hans er talið svipa til annarra laga ásamt ummæla hans um samkynhneigða sem hann hefur beðist afsökunar á. Hann segir lagið fjalla um erfiðleika sem hann gekk í gegnum þegar hann var barn og átti erfitt með að eignast vini. Måns hvetur fólk til að missa ekki vonina. Góðir hlutir gerist hægt. 



Sviss

Mélanie René

Time to shine

Mélanie segist alla tíð hafa haft ástríðu fyrir söng. Líf hennar hefur meira og minna einkennst af tónlist en báðir foreldrar hennar eru tónlistarmenn. Hún hefur tekið þátt í nokkrum söngvakeppnum, meðal annars í Rúmeníu og Bretlandi. Mélanie segist hafa samið lagið eftir að hafa fundið fyrir ákveðinni frelsistilfinningu í sínu lífi. Henni fannst hún loks fullorðin og stefna eitthvert í lífinu. „Það er þessi frelsistilfinning sem ég vildi koma á framfæri í laginu mínum,“ sagði Mélanie. 



Kýpur

John Karayiannis

One Thing I Should Have Done

John er tvítugur og segist hafa sungið allt frá sex ára aldri. Hann er frá Limassol í Kýpur en hyggst flytja til Bretlands eftir Eurovision-keppnina, þar sem hann mun taka upp sína fyrstu plötu. John segir Eurovision bestu söngvakeppni í heimi og er þakklátur fyrir að hafa fá að taka þátt. Hann segist eiga tíu gleraugnapör, ef svo óheppilega færi að hann myndi týna einhverju þeirra. Þá spilar hann mikið tölvuleiki, en hans uppáhalds leikur er World of Warcraft.



Slóvenía

Maraaya 

Here for you

Það er slóvenska dúóið Maraaya sem syngur lagið Here for you. Lagið þeirra hefur vakið athygli og er spáð góð gengi, en þau hafa einnig vakið athygli fyrir það eitt að nota alltaf heyrnartól þegar þau syngja. Þau segja heyrnartólin til þess fallin að forðast óþarfa ónæði og truflun ásamt því að þau láti þeim líða eins og þau séu í upptökuveri.



Pólland

Monika Kuszyńska

In The Name Of Love

Söngferill Moniku hófst árið 2001. Hún lenti í alvarlegu bílslysi árið 2006 og lamaðist fyrir neðan mitti. Hún tók sér þá hlé í fjögur ár. Hún lætur það þó ekki hamla sér og segir að allir eigi að láta drauma sína rætast. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×