Körfubolti

Seinkun á leik Þórs og Stjörnunnar af því að dómari meiddist

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leifur Garðarsson var kallaður út þegar dómari meiddist.
Leifur Garðarsson var kallaður út þegar dómari meiddist. Vísir/Ernir
Reiknað er með að einhver seinkun verði á leik Þórs úr Þorlákshöfn og Stjörnunnar sem átti að hefjast klukkan 19.15 í Dominos-deild karla.

Jón Guðmundsson meiddist í upphitun og þurfti að kalla út Leif Sigfinn Garðarsson sem sat í mestu makindum heima hjá sér þegar boðið kom, en Leifur er í þessum skrifuðu orðum að keyra Þrengslin.

Leifur dæmir því leikinn ásamt Ísaki Erni Kristinssyni og Davíð Kristjáni Hreiðarssyni, en um hörkuleik er að ræða.

Þarna mætast liðin í þriðja til fjórða sæti deildarinnar.

Fylgjast má leiknum í beinni lýsingu hér, en reiknað er með að leikurinn hefjist í kringum hálf átta.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×