Erlent

Segjast ætla að hreinsa svæðið af hryðjuverkum

Samúel Karl Ólason skrifar
Skólahúsið er gríðarlega skemmt eftir fjöldamorðin í gær.
Skólahúsið er gríðarlega skemmt eftir fjöldamorðin í gær. Vísir/AFP
Fjölmiðlar fengu í morgun aðgang að skólanum í Peswhar þar sem sjö vígamenn myrtu 148 manns í gær. Flestir hinna látnu voru börn. Skólinn skemmdist gríðarlega í átökum hersins við vígamennina.

Hershöfðinginn Asim Bajwa sagði fjölmiðlum að vígamennirnir sjö hefðu allir verið í sprengivestum. Þeir komust inn á lóðina með því að klifra yfir vegg með stiga. Þá fóru þeir í samkomusal skólans og þar upp á svið. Þaðan skutu þeir á börnin, en Bajwa sagði að herinn hefði fundið um hundrað lík þar inni.

Bajwa sagði í morgun að herinn myndi taka hart á Talíbönum vegna ódæðisins og að yfirvöld í Islamabad vonuðust til þess að Afganistan myndi gera slíkt hið sama á næstu dögum.

Forsætisráðherra Pakistan, Nawas Sharif, segist hafa rætt við Ashraf Ghani, forseta Afganistan, um hvernig löndin tvö geta barist gegn hryðjuverkum í sameiningu. Herir beggja ríkja munu nú ráðast gegn Talíbönum við landamæri ríkjanna.

Pakistan hefur, samkvæmt AP fréttaveitunni, gagnrýnt stjórnvöld í Afganistan fyrir að taka ekki nægilega hart á Talíbönum innan Afganistan, sem halda til við landamæri Pakistan. Talíbanar í Afganistan hafa hinsvegar fordæmt fjöldamorðin í skólanum í Peshwar og segja árásina vera gegn anda Íslam.

Talsmaður Talíbana í Pakistan sendi frá sér tölvupóst í morgun þar sem hann sagði árásina vera réttmæta, þar sem herinn hafi um árabil myrt börn og fjölskyldur vígamanna Talíbana. Mohammad Khurasani hét frekari árásum og biðlaði til íbúa Pakistan að draga úr tengslum sínum við herinn.

29 voru handteknir í og nærri Peshawar í gær og loftárárásir voru gerðar á Talíbana víða í Pakistan.

Stórir blóðpollar voru víða um skólann.Vísir/AFP
Þegar árásin hófst var skólastjóri skólans á skrifstofu sinni og þegar vígamennirnir reyndu að ná henni, læsti hún sig inn á baði. Þeir köstuðu þó handsprengju inn í gegnum loftrúðu og drápu hana.

Þá segir DailyMail frá því að börn hafi verið neydd til að horfa á vígamennina brenna kennara lifandi. Einn mannanna er sagður hafa sprengt sig í loft upp í skólastofu með 60 börnum.


Tengdar fréttir

Drápu hátt á annað hundrað skólabarna

Pakistanska talibanahreyfingin lýsti yfir ábyrgð sinni á fjöldamorðum í skóla í Peshawar. Árásin hefur verið fordæmd af þjóðarleiðtogum víða um heim.

Þriggja daga þjóðarsorg í Pakistan

Íbúar í pakistönsku borginni Peshawar eru byrjaðir að grafa alla þá sem létust í árás talibana á skóla í borginni fyrr í dag. Alls létust 132 börn í árásinni og níu fullorðnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×