Innlent

Segja umtalsverð tækifæri í endurheimt votlendis

Samúel Karl Ólason skrifar
Verkís leggur fram tillögur um að endurheimta 87 hektara af votlendi.
Verkís leggur fram tillögur um að endurheimta 87 hektara af votlendi. Vísir/GVA
Borgaryfirvöld vilja endurheimta votlendi í ofanverðum Úlfarársdal. Sú aðgerð fæli í sér fjölþætt gildi eins og náttúruvernd og þá myndi draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Hægt væri að gera votlendið að friðlandi þar sem um 50 fuglategundir hafa sést á svæðinu.

Verkfræðistofan Verkís hefur nú skilað skýrslu um úttekt á tækifærum til endurheimtar votlendis í dalnum. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að svæðið sem um ræðir sé norðan Úlfarsár, austan við núverandi byggð í Úlfarsárdal eða frá Víðimýri í vestri og út að sveitarfélagamörkum við Mosfellsbæ í austri.

Þar hefur verið umtalsverð framfærsla og eru þar ræktuð tún með skuðum sem notuð eru að mestu fyrir hrossabeit. Enn er mikið að votlendi þar og segir í tilkynningunni að tækifæri til að auka umsvif votlendis séu töluverð.

Skýrslu Verkís má sjá hér.

Þar eru lagðar fram tillögur um að endurheimta 87 hektara af votlendi. Ekki sé hægt að endurheimta votlendi á öllu svæðinu þar sem brekkur og holt standa upp úr landi. Lagt er til að nokkrir skurðir verði stíflaðir á nokkrum stöðum. Leifar af uppgreftri eru á nokkrum stöðum en annarsstaðar þurfi að flytja að efni.

Þá er lagt til að á nokkrum stöðum sé hægt að búa til litlar tjarnir. Um 50 fuglategundir hafa sést á svæðinu og um helmingur þeirra eru reglulegir varpfuglar. Nýjar tjarnir myndu auka fjölbreytni smádýralífs og laða að frekari votlendisfugla.

Endurheimtin er einnig sögð muna hafa áhrif á losun gróðurhúsalofttegunda með aukinni bindingu kolefnis. Samkvæmt grófu mati á mögulegri bindingu gætu allt að 400 tonn af kolefni bundist á ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×