Enski boltinn

Segja Tottenham hafa samþykkt tilboð frá Palace í Gylfa

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. vísir/getty
The Five Year Plan, stuðningsmannasíða Crystal Palace sem sögð er vel tengd innan félagsins, greinir frá því í dag að Tottenham hafi samþykkt átta milljóna punda tilboð í Gylfa Þór Sigurðsson.

Haldið er fram að Tottenham sé tilbúið að láta Gylfa Þór fara eftir tvær leiktíðir á White Hart Lane, en hann var mikið á varamannabekk liðsins síðasta vetur.

Gylfi Þór hefur sjálfur ekki rætt við Palace þó tilboðinu hafi verið tekið, að sögn vefsíðunnar, en svo gæti farið að íslenski landsliðsmaðurinn færi sig um set í London.

Crystal Palace kom mikið á óvart í fyrra sem nýliði í deildinni, en undir stjórn TonysPulis endaði liðið í ellefa sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×