Segja sölu Landsbankans á hlut í BYR spillingu Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 11. maí 2009 18:05
Skilanefnd Landsbankans seldi 2,6% hlut í Byr til lítils fjárfestingafélags rúmri viku fyrir aðalfund. Endurskoðandi félagsins er formaður skilanefndarinnar. Salan lyktar af atkvæðasmölun og spillingu segja stofnfjáreigendur. Landsbankinn varð stærsti hluthafi BYRS þegar 7,5% hlutur Imons, félags í eigu athafnamannsins Magnúsar Ármanns, var tekinn yfir vegna skulda. Við það varð gamli Landsbankinn eigandi bréfanna og hafa þau verið í umsjón skilanefndar bankans. Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er engum heimilt að fara með meira en 5% af heildaratkvæðamagni í sparisjóði, hvort sem yfirráð yfir atkvæðarétti byggjast á beinni eða óbeinni hlutdeild í stofnfé sparisjóðs. Aðalfundur BYRS verður haldinn eftir tvo daga en í síðustu viku seldi skilanefnd Landsbankans félaginu Reykjavik Invest 2,6% af hlut sínum í sparisjóðnum og heldur eftir rétt tæpum 5%. Við þessi viðskipti fær Reykjavik Invest, sem er lítið fjárfestingarfélag, atkvæðarétt á aðalfundinum en Landsbankinn hefði ekki getað nýtt sér hann. Eigandi Reykjavik Invest er Arnar Bjarnason og býður hann sig fram til stjórnar BYRS. Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið eða hvernig kaupin hefðu verið fjármögnum. Endurskoðandi Reykjavik Invest er Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans. Hann vildi ekki tjá sig um málið en sagðist víkja sæti ef um hagsmunaárekstra væri að ræða. Fréttastofa ræddi í dag við nokkra stofnfjáreigendur í BYR sem eru afar ósáttir við þessi viðskipti. Óeðlilegt sé að skilanefndin sé að beita sér í atkvæðasöfnun fyrir aðalfund og það væri í raun hámark spillingarinnar. Jón Kr. Sólnes, sem býður sig fram sem formaður stjórnar BYRS sagði í samtali við fréttastofu að honum finnist ekki eðlilegt að skilanefnd Landsbankans sé að beita sér með þessum hætti ef það er gert til að nýta atkvæðaréttin til fulls.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira