Innlent

Segja Siðfræðistofnun fara rangt með

Sveinn Arnarsson skrifar
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss, segir fullan vilja til að veita aðgang að gögnum spítalans vegna barkaígræðslumálsins.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss, segir fullan vilja til að veita aðgang að gögnum spítalans vegna barkaígræðslumálsins. vísir/valli
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir stofnunina hafa tekið barkaígræðslumálið svokallaða föstum tökum á sjúkrahúsinu til þess að geta lært af því og upplýst um það.

Siðfræðistofnun segir málið til vansa fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi og kallar það eitt mesta siðferðisslys norrænnar heilbrigðisþjónustu.

„Fyrst ber að nefna að Siðfræðistofnun fer ranglega með að sænskar rannsóknarnefndir hafi ekki aðgang að upplýsingum hér á landi. Það er ekki rétt,“ segir Páll, en í bréfi stofnunarinnar er talið mikilvægt að setja á stofn íslenska rannsóknarnefnd til að skoða íslensk gögn í málinu. „Hér hefur verið haft mikið og gott samráð við þær sænsku rannsóknarnefndir sem hafa haft samband við okkur.“

Páll segir það mikilvægt að málið verði upplýst og það sé vilji spítalans að svo verði. „Ef það er svo niðurstaða Alþingis að skipa nefnd þá munum við að sjálfsögðu veita allar þær upplýsingar sem við getum veitt. Það er okkar markmið eins og annarra að upplýsa um málið og hvað hægt sé að læra af því.“

Í yfirlýsingu sem Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir og prófessor, sendi frá sér í gær kemur fram að Siðfræðistofnun hafi ekki leitað eftir upplýsingum hjá honum, en hann kom bæði að meðferð mannsins sem lést eftir að hafa fengið græddan í sig barka og er í hópi meðhöfunda að umdeildri grein um meðferðina sem birtist í læknablaðinu Lancet. Hann vill halda því til haga að ákvörðun um aðgerðina hafi verið tekin í Stokkhólmi, þar sem hún hafi farið fram og mestur hluti eftirfylgni að henni lokinni.

„Ég tel ekki rétt að tjá mig frekar að svo stöddu þar sem rannsóknum lykilnefnda í Svíþjóð er enn ólokið,“ bætir Tómas við. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júní


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×