Innlent

Segja sátt rofna og málsmeðferðarreglur brotnar

Atli Ísleifsson skrifar
Landvernd segir að fimm af þessum virkjanahugmyndum hafi ekki hlotið þá málsmeðferð sem lög mæla fyrir um.
Landvernd segir að fimm af þessum virkjanahugmyndum hafi ekki hlotið þá málsmeðferð sem lög mæla fyrir um. Vísir/Vilhelm
Stjórn Landverndar mótmælir harðlega framkominni tillögu meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis um að færa átta virkjanahugmyndir úr biðflokki í nýtingarflokk rammaáætlunar.

Í tilkynningu frá Landvernd segir að fimm af þessum hugmyndum hafi ekki hlotið þá málsmeðferð sem lög mæla fyrir um. „Aðkoma verkefnisstjórnar, faghópa hennar og almennings er engin. Tillaga atvinnuveganefndar felur í sér alvarlegt rof á tilraun til sátta um orkunýtingu í landinu. Þá er tillagan brot á grundvallarmarkmiði rammaáætlunarlaganna um að nýting byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati. Verði tillagan samþykkt er rammaáætlunarferlið ónýtt.“

Stjórn Landverndar bendir á að tillaga atvinnuveganefndar virðist vera í andstöðu við málsmeðferðarreglur rammaáætlunarlaga. Lögin kveði á um skýrt verklag. „Í fyrsta lagi er það umhverfisráðherra sem með lögunum er falið að leggja tillögur um flokkun virkjanahugmynda fyrir Alþingi. Í þessu máli hefur það ekki verið gert nema um þrjár hugmyndir í neðrihluta Þjórsár.

Í öðru lagi verður ráðherra að byggja tillögur sínar á mati verkefnisstjórnar rammaáætlunar um rökstudda flokkun virkjunarhugmynda, að teknu tilliti til umsagna almennings og hagsmunaaðila. Fimm af átta virkjunarhugmyndum sem atvinnuveganefnd leggur til að færa í nýtingarflokk hafa hinsvegar ekki fengið þessa faglegu umfjöllun.

Í þriðja lagi hefur engin átta hugmyndanna verið metin með stigagjöf af faghópum verkefnisstjórnar, en það er hinn lögmæti undanfari mats verkefnisstjórnar.“

Vilja að virkjanir í neðrihluta Þjórsár fari í biðflokk

Stjórn Landverndar bendir á að verði tillagan samþykkt og verklag atvinnuveganefndar reynist í ósamræmi við lög, yrðu allar ákvarðanir sem byggja á samþykktinni jafnframt ólögmætar og að engu hafandi.

„Stjórn Landverndar tekur fram að í athugasemdum samtakanna við afgreiðslu núgildandi rammaáætlunar lagði Landvernd til að allar virkjanahugmyndir á hálendinu yrðu settar í verndarflokk, þ.m.t. Hagavatnsvirkjun, Skrokkölduvirkjun og Hágönguvirkjanir, auk Hólmsárvirkjunar við Atley. Þá lagði Landvernd til að virkjanir í neðrihluta Þjórsár færu í biðflokk. Samtökin ítreka þetta mat sitt sem byggir á gögnum fyrri verkefnisstjórnar rammaáætlunar.

Stjórn Landverndar mótmælir tillögunni harðlega og krefst þess að atvinnuveganefnd virði leikreglur og viðleitni til sátta um stefnumótun í orkumálum á grundvelli rammaáætlunar,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×