Innlent

Segja örfáa útvalda lögmenn í náð lögreglu

Snærós Sindradóttir skrifar
Borið hefur á því að sakborningum finnist verjendur sínir illa undirbúnir fyrir málflutning og gleymi jafnvel mikilvægum atriðum fyrir dómi.
Borið hefur á því að sakborningum finnist verjendur sínir illa undirbúnir fyrir málflutning og gleymi jafnvel mikilvægum atriðum fyrir dómi. Fréttablaðið/Vilhelm
„Það eru alltaf að koma upp mál þar sem sakborningar, sérstaklega útlendingar, eru óánægðir með þá verjendur sem lögregla hefur skipað þeim,“ segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga.

Afstaða hefur sent formlegt bréf til Lögmannafélags Íslands þar sem óskað er eftir því að félagið fari fram á að mótaðar verði verklagsreglur um tilnefningu verjenda til handa sakborningum.

Verklagið eigi að tryggja að ekki skapist tortryggni um að óeðlileg hagsmunatengsl séu á milli lögreglu og lögmanna. 

Í bréfinu segir að fangar kvarti yfir því að illa gangi að ná í lögmenn og þeir séu illa undirbúnir fyrir dómsmál.

Lögmenn gleymi mikilvægum atriðum í málinu og skorti reynslu af verjendastörfum. 

Guðmundur Ingi Þóroddsson
Þá segir: „Fangar hafa tekið svo til orða að lögmenn þeirra líti á þá sem „fasta greiðslu“ frá ríkissjóði.“

Lögmannafélag Íslands er með svokallaðan bakvaktarlista sem ætlaður er fyrir lögreglu til að hringa í verjendur. Samkvæmt Afstöðu er þessi listi nær aldrei notaður heldur sér lögregla um að hringja í verjendur sem hún velur sjálf, óski sakborningur ekki eftir einhverjum sérstökum. 

Afstaða segist í tvígang hafa bent Lögmannafélaginu á að úr þessu þurfi að bæta en án árangurs.

„Örfáir útvaldir lögmenn fá meirihluta allra sakamála, ekki síst mjög stórra sakamála, í svo miklum mæli að óeðlileg hagsmunatengsl hljóta að vera fyrir hendi. Félaginu hafa borist ábendingar um að sama gildi að einhverju leyti um réttargæslumenn brotaþola,“ segir í bréfinu. 

Þá segir í bréfinu að umtalsverðum fjármunum sé með þessu skammtað af hálfu lögreglu til lögmanna.

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að þetta standi til bóta.

„Menn eru misviljugir að taka verjendastörf að sér. Bakvaktarlisti Lögmannafélags Íslands hefur einhvern veginn ekki virkað almennilega og þess vegna styðjast menn minna við hann en þeir ættu að gera,“ segir Friðrik.

Hann segir að nú eigi sér stað samræður á milli lögreglunnar og Lögmannafélagsins um að koma bakvaktarlistanum í betra horf, svo listinn sé uppfærður og verjendur séu tilbúnir að sinna útköllum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×