Innlent

Segja kosningasvik meirihlutans áberandi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Háðið drýpur af bókun Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ.
Háðið drýpur af bókun Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. VÍSIR/GVA
Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ segja að ekki hafi verið upplýst um efni umsókna þeirra rúmlega 20 sem sóttu um stöðu bæjarstjóra í sveitarfélaginu eða hvernig meirihlutinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að ráða Kjartan Má Kjartansson, fyrrverandi bæjarfulltrúa, til starfsins. Þetta kemur fram í bókun sjálfstæðismanna í bæjarráði morgun.

Í ljósi upplýsingafæðar hafi því verið ógjörningur að taka afstöðu til umsækjenda.

Kjartan Már var lengi leiðtogi Framsóknarmanna í Reykjanesbæ og segja fulltrúar sjálfstæðisflokksins það því vera „ánægjulegt að núverandi þrír flokkar í meirihluta skuli svo stuttu eftir kosningar komnir af þeirri skoðun sinni að ekki skuli vera pólitískur bæjarstjóri“.

Í bókuninni er einnig hnýtt í Frjálst afl sem sjálstæðismenn segja að hafa fallið frá stefnu sinni með áberandi hætti en flokkurinn sagði fyrir kosningar að bæjarstjóri þurfi að vera sérfræðingur í „endurskipulagningu skulda“ og „beintengjast ekki stjórnmálaöflum í bæjarfélaginu“.

Hann hafi þó góða rekstrarreynslu og óska sjálfstæðismenn Kjartani Má góðs gengis í starfi sínu fyrir bæinn.

Bókunina í heild sinni má sjá hér að neðan.

Við ákvörðun um ráðningu bæjarstjóra hafa sjálfstæðismenn ekki verið

upplýstir um efni umsókna þeirra rúmlega 20 sem sóttu um stöðu bæjarstjóra

og hvernig komist var að umræddri niðurstöðu. Því er ógjörningur að taka

afstöðu til umsækjenda.

Hins vegar er ánægjulegt að núverandi þrír flokkar í meirihluta skuli svo

stuttu eftir kosningar komnir af þeirri skoðun sinni að ekki skuli vera

pólitískur bæjarstjóri því aðili með skýran pólitískan bakgrunn er metinn

bestur til starfsins. Kjartan Már  hefur að auki góða rekstrarreynslu.

Áberandi er að Frjálst afl hefur fallið frá þeirri stefnu sinni að

bæjarstjóri þurfi að vera sérfræðingur í „endurskipulagningu skulda“ og

„beintengjast ekki stjórnmálaöflum í bæjarfélaginu“.

Við óskum Kjartani Má góðs gengis í starfi sínu fyrir bæinn og munum vinna

vel með honum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×