Lífið

Segja Ingu Eiríks eiga heima í Sports Illustrated

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vefsíðan Fanshare segir að íslenska fyrirsætan Inga Eiríksdóttir sé ein af þeim fyrirsætum sem vert er að fylgjast með á næsta ári, ekki síst vegna þess að þá verði nýtt baðfatatímarit Sports Illustrated gefið út.

Tímaritið er gefið út árlega og er eitt það frægasta í heimi. Fyrirsætur á borð við Cindy Crawford, Elle MacPherson, Heidi Klum, Tyra Banks og Christie Brinkley hafa setið fyrir í tímaritinu.

Í tímariti næsta árs verða margar fyrirsætur sem ekki hafa prýtt síður þess áður samkvæmt Fanshare og fara þessir nýliðar í pott og keppa um nafnbótina Nýliði ársins.

Gæti farið svo að Inga yrði einn af þessum nýliðum en hún hefur unnið við fyrirsætustörf í um fimmtán ár og unnið fyrir til að mynda Ralph Lauren. Vonast þeir hjá Fanshare að Inga prýði síður Sports Illustrated-ritsins.

„Ef Inga Eirkísdóttir fær pláss í ritinu væri hún verðugur keppinautur í Nýliða ársins þar sem hún er ein fallegasta kona í heiminum.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×