Segja færeysk skip fá helmingi hærra verð fyrir makríl 10. september 2010 03:15 Færeyski flotinn er sagður mun betri en sá íslenski og skili betra hráefni. Ferskleiki hráefnisins skiptir hvað mestu í verðmyndun aflans. fréttablaðið/óskar p. friðriksson
Skipverjar á Faxa RE fullyrða í skipabloggi sínu að færeyska skipið Fagraberg hafi fengið helmingi hærra verð fyrir landaðan makríl hjá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum en íslensk skip fá fyrir sinn afla. Þessu hafnar verksmiðjustjóri Ísfélagsins. Hann segir að færeysk skip séu þó almennt mun betri en þau íslensku og skili betra hráefni. Það sé stór þáttur í verðmyndun aflans. Faxamenn rákust á litla frétt á færeysku sjávarútvegssíðunni skipini.com þar sem segir frá því að færeyska skipið Fagraberg hafi landað eitt þúsund tonnum í Vestmannaeyjum fyrir fjórar krónur danskar á kílóið. Það eru um 80 krónur íslenskar. Þeir spyrja hvort þetta geti verið þegar það liggi fyrir að íslensk skip, og þá skipti litlu hvar landað er, fái 36 til 42 krónur fyrir landað kíló af makríl. „Er þetta ekki sami makríllinn og við erum að landa eða fer þessi kannski á aðra markaði?“ spyrja þeir. Páll Scheving Ingvarsson, verksmiðjustjóri Ísfélagsins, segir það verð sem birt er á færeysku síðunni „fjarri lagi“. Hann vill hins vegar ekki greina frá því hvaða verð var borgað fyrir makrílinn sem Fagrabergið landaði. „Við gefum ekki upp það verð sem við greiðum, hvort sem það er innlendur eða erlendur afli.“ Páll segir að þegar verðmyndun sjávarfangs er til umræðu verði að hafa hugfast hver stærð fisksins er og þá líka aðstæður um borð í skipunum til að kæla aflann og færa hann til hafnar í sem bestu ástandi. „Þetta er spurning hvað hægt er að gera úr hráefninu.“ Spurður hvort íslensk skip séu að landa verra hráefni en færeysku skipin svarar Páll því til að íslensk skip í uppsjávarveiðum standist einfaldlega ekki samanburð við þau færeysku. „Bæði færeyski og norski flotinn er margfalt öflugri en sá íslenski. Þeir eru miklu betur í stakk búnir til að færa ferskt hráefni að landi, því miður er þetta bara staðreynd. Og hvers vegna eru þeir að efla sinn flota? Það er til þess að geta landað besta hugsanlegu hráefni fyrir besta hugsanlega verð.“ Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs HB Granda, staðfestir að greitt verð fyrir makríl á Grandaskipum sé 36 til 42 krónur eins og Faxamenn tala um. Hins vegar er honum ekki kunnugt um verð til færeyskra skipa þar sem Grandi hefur ekki keypt afla af öðrum en eigin skipum. Hann viðurkennir að séu tölurnar réttar sé um afar gott verð að ræða. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Marius látinn laus Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira