Enski boltinn

Segja Coutinho vilja fara frá Liverpool

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Spænska dagblaðið Sport slær því upp á forsíðu sinni í dag að Brasilíumaðurinn Coutinho vilji ganga í raðir Barcelona.

Coutinho er lykilmaður hjá Liverpool en samkvæmt fréttinni er hann reiðubúinn að fara frá félaginu eftir að Brendan Rodgers var rekinn um helgina.

Barcelona mun hafa boðið í Coutinho síðastliðið sumar en Liverpool hafnaði þá tilraunum félagsins. Samkvæmt fréttinni þá er Liverpool nú sagt reiðubúið að selja Brasilíumanninn fyrir rétta upphæð.

Líklegt er að Barcelona þurfi að reiða fram 30 milljónir evra fyrir Coutinho, um 4,2 milljarða króna. Einnig er fullyrt að Real Madrid gæti blandað sér í baráttuna um kappann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×