Segja Borgarahreyfinguna hafa óbreytta afstöðu til ESB Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. júlí 2009 11:50 Liðsmenn Borgarahreyfingarinnar segjast hafa óbreytta stefnu í ESB málum.
Borgarahreyfingin er enn þeirrar skoðunar að ekki sé hægt að taka afstöðu til aðildar að Evrópusambandinu nema að undangengnum aðildarviðræðum, líkt og stefna hreyfingarinnar var í aðdraganda kosninga. Þetta kemur fram í tilkynningu sem framkvæmdastjóri hreyfingarinnar sendi fjölmiðlum í morgun. „Niðurstaða þeirra, að lokinni víðtækri kynningu, yrði síðan borin undir þjóðaratkvæði. Var það niðurstaða hreyfingarinnar eftir miklar umræður, að þessi leið væri í anda þeirra lýðræðisumbóta sem að hreyfingin vill standa fyrir. Stjórn Borgarahreyfingarinnar vill árétta að þetta er enn skýr stefna hreyfingarinnar. Lögum samkvæmt ber þingmönnum hreyfingarinnar hins vegar að kjósa samkvæmt eigin sannfæringu," segir í tilkynningunni. Mikil umræða hefur verið um afstöðu Borgarahreyfingarinnar til þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um aðild að ESB. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, sagði um helgina að hún ætlaði sér að styðja tillögu um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún hafi hins vegar ekkert sagt um það hvernig hún greiðir atkvæði um tillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Haft var eftir Þór Saari, þingmanni Borgarahreyfingarinnar, í Morgunblaðinu í dag að þingmenn hreyfingarinnar hefðu gert forsætisráðherra og fjármálaráðherra það ljóst að þingmenn Borgarahreyfingarinnar vildu slá Iceasve málið út af borðinu á Alþingi ellegar myndu þau greiða atkvæði með tvöfaldri atkvæðagreiðslu um aðild að ESB.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Fleiri fréttir Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Sjá meira