Innlent

Segja ákvörðunina um brottvísun byggða á ákvörðun ríkissaksóknara

Samúel Karl Ólason skrifar
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri. Vísir/ERnir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að ákvörðun um að veita lögregluþjóni lausn frá starfi um stundarsakir hafi ekki verið byggð á orðrómi. Hún hafi verið byggð á ákvörðun ríkissaksóknara um að hefja formlega rannsókn á hendur honum.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem nýverið var send út fyrir hönd yfirstjórnar LRH.

Tilefni tilkynningarinnar er frétt RÚV í dag um úrskurð innanríkisráðuneytisins um málið. Þar var því haldið fram að Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri, hefði vikið lögregluþjóninum úr starfi vegna orðróms.

Sjá einni: Telja að Sigríður Björk hafi byggt ákvörðun sína á orðrómi en ekki gögnum

„Upphaf máls var að formlegt erindi frá ríkissaksóknara barst þann 11. janúar s.l. þar sem ríkissaksóknari tilkynnti að hann hefði mælt fyrir um að hefja sakamálarannsókn á hendur lögreglumanni hjá embættinu. Í tilkynningunni kemur fram að sakarefni  málsins séu alvarleg með heimfærslu til 128. og 136. gr. almennra hegningarlaga,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir enn fremur að lögum samkvæmt beri embættinu að taka afstöðu til þess hvort lög stæðu til þess að veita lögregluþjóninum lausn á meðan rannsókn færi fram.

„Í framhaldinu var tekið til skoðunar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samræmi við ákvæði starfsmannalaga, hvort veita bæri lögreglumanninum lausn frá embætti um stundarsakir, eins og kveðið er á um. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði þegar ákvörðun var tekin hvorki stöðu né forsendu til að endurmeta þann rökstudda grun sem ríkissaksóknari grundvallaði ákvörðun sína á.“

Niðurstaða embættisins var að þær athafnir sem lögregluþjónninn var grunaður um væru ósamrýmanlegar því embætti sem hann gengi og að grunuð háttsemi myndi hafa í för með sér sviptingu starfsréttinda, yrði hann sakfelldur. Því hafi verið ákveðið að veita honum lausn um stundarsakir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×