Segja ákvörðun niðurlægjandi 23. febrúar 2005 00:01
Lítilsvirðing. Niðurlæging. Þetta eru orðin sem notuð eru til að lýsa þeirri ákvörðun Elísabetar Bretlandsdrottningar að mæta ekki í brúðkaup sonar síns, Karls Bretaprins, og heitkonu hans, Camillu Parker Bowles. Þetta konunglega brúðkaup virðist vera að breytast í vandræðalegan skrípaleik. Það verður allt að hneyksli í höndum bresku konungsfjölskyldunnar. Nú er það brúðkaup hjónaleysanna Karls og Camillu. Yfirlýsing Elísabetar um að hún ætli ekki að vera viðstödd þegar ríkisarfinn og elsti sonurinn gengur í hjónaband á nýjan leik hefur hrist upp í bresku þjóðinni og sitt sýnist hverjum. Dickie Arbiter, sérfræðingur um bresku konungsfölskylduna, segir að ekki sé um ofanígjöf að ræða að hálfu drottningar. Þegar litið sé á hlutina sé miðaldra par að fara að gifta sig öðru sinni. Arthur Edwards, sem líka er sérfræðingur í bresku konungsfjölskyldunni, er á öndverðum meiði og segir ákvörðun drottningar ofanígjöf. Ef sonur hans eða dóttir væri að gifta sig færi hann í brúðkaupið, hvar og hvenær sem það væri. Talsmenn drottningar segja að hún sé aðeins að virða óskir hjónaleysanna um að athöfnin verði fábrotin og láti lítið yfir sér. En þetta er ekki það eina því allt við undirbúning þessa brúðkaups virkar vandræðalegt og illa skipulagt: Þannig er til að mynda búið að flytja brúðkaupið úr Windsor-kastala og breyta því í borgaralega athöfn og það var fyrst í dag sem lögspekingar kváðu upp úr með að brúðkaupið fengið staðist lög. Allur þessi glundroði vekur grunsemdir. Edwards segir að konungsfjölskyldan geri allt annað rétt, hvort sem um er að ræða árþúsundaskiptin, krýningarafmæli og jarðarfarir. Í þessu tilviki sé hins vegar maðkur í mysunni.
Menning Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira