Innlent

Segja aðhaldsaðgerðir í málefnum háskólanna brjóta gegn stjórnarsáttmála

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Aðalbygging Háskóla Íslands.
Aðalbygging Háskóla Íslands. Vísir/Anton
Stúdentaráð Háskóla Íslands segist leggjast alfarið gegn þeirri aðhaldsstefnu stjórnvalda sem hefur verið ríkjandi í málefnum háskólans undanfarin ár. Sú stefna hafi leitt til verulegrar undirfjármögnunar háskólans. Þetta kemur fram í ályktun frá ráðinu.

„Það hefur alvarleg áhrif á gæði náms sem sést meðal annars á niðurfellingu um 50 námskeiða við skólanná þessu ári vegna kröfu stjórnvalda um aðhald. Benda má á að fleiri námskeið hafa verið felld niður undanfarin ár og því er ekki um að ræða fyrsta skiptið sem gripið hefur verið til slíkra aðhaldsaðgerða,“ segir í ályktuninni.

„Þær aðhaldsaðgerðir geta leitt til þess að einstaklingar þurfi að fresta útskrift auk þess sem þær minnka val innan námsgreina, draga úr möguleika námsmanna á sérhæfingu í námi og skerða jafnrétti til náms. Þær brjóta gegn stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar þar sem kveðið er á um að „háskólar á Íslandi verði studdir í að halda uppi gæðum og standast alþjóðlega samkeppni.“ Það skýtur skökku við að mæla fyrir auknum stuðningi við háskólana, en um leið boða aðhaldsaðgerðir í málefnum þeirra.“

Í ályktuninni segir jafnframt að á undanförnum misserum hafi ítrekað komið fram að íslenskir háskólar standist ekki alþjóðlegan samanburð þegar kemur að fjármögnun þeirra.

„Íslenskir háskólar fá um helmingi lægri framlög á hvern háskólanema en háskólar annars staðar á Norðurlöndum.3 Enn eru framlög á hvern nemanda í íslensku háskólakerfi lægri en þau voru fyrir áratug- og það þrátt fyrir að háskólakerfið hafi samkvæmt erlendum úttektum verið undirfjármagnað á þeim tíma. Stúdentaráð krefst þess að sú staða verði leiðrétt.

Öflugt menntakerfi er grunnstoð framsækinna og samkeppnishæfra nútímasamfélaga. Stúdentaráð Háskóla Íslands trúir því að stjórnvöld hafi áhuga á að byggja upp slíkt samfélag á Íslandi og krefst þess að þau sýni það í verki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×