Innlent

Segja að vonarglætan hafi orðið að engu í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér mæta Páll Halldórsson og félagar hans í BHM í Félagsdóm.
Hér mæta Páll Halldórsson og félagar hans í BHM í Félagsdóm. Fréttablaðið/Ernir
Fyrir helgi sendi BHM frá sér fréttatilkynningu þar sem því var lýst yfir að verkfallsaðgerðir yrðu ekki hertar að svo stöddu.

Í tilkynningu frá BHM í dag segir að sú ákvörðun hafi verið tekin í trausti þess að á næsta fundi samninganefndar BHM með ríkinu, sem var í dag, yrðu tekin sýnileg skref í átt að lausn deilunnar.

„Sú vonarglæta sem vaknaði fyrir um viku síðan að samningaviðræður væru loksins hafnar eftir nokkra mánaða setu með samninganefnd ríkisins hjá ríkissáttasemjara varð að engu í dag. Það er deginum ljósara að enginn samningsvilji sé hjá ríkinu,“ segir Páll Halldórsson formaður samninganefndar BHM.

Hann segir ríkisstjórnina augljóslega ekki tilbúna til að taka forystu við lausn deilunnar.

„BHM hefur ítrekað verið tilbúið að ræða ýmsar leiðir til lausnar en þrátt fyrir það hefur ríkið ekki fengist í þá vinnu af alvöru og það sýnt sig að þeir eru að bíða eftir að samið verði á almennum vinnumarkaði.“

Í tilkynningu BHM segir að með þessu sýni ríkið starfsmönnum sínum vanvirðingu þar sem samningsréttur þeirra sé ekki virtur.

„Stjórnvöld hafa að engu þau víðtæku áhrif sem verkfallsaðgerðir starfsmanna þeirra hafa og virða að vettugi þá grafalvarlegu stöðu sem löngu er komin upp í samfélaginu. Þessi staða er algerlega á ábyrgð ríkisins,“ segir Páll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×