Innlent

Segist í lífshættu vegna brottvísunar til Frakklands

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Morteza Songolzade hælisleitandi með úrskurð frá lögreglu um brottvísun til Frakklands.
Morteza Songolzade hælisleitandi með úrskurð frá lögreglu um brottvísun til Frakklands. vísir/ernir
Morteza Song­olzadeh, hælisleitanda frá Íran sem var dæmdur til dauða í heimalandinu, var afhent formleg tilkynning um brottvísun til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar hjá alþjóðadeild lögreglunnar í gær.

Morteza telur yfirgnæfandi líkur á að Frakkar sendi hann aftur til Írans.

Hann vakti athygli í mótmælum Íslensku þjóðfylkingarinnar á Austurvelli fyrr í mánuðinum þegar hann gaf meðlimum hennar heitan kaffisopa.

Morteza hefur dvalið á Íslandi í rúmt ár. Honum hefur verið synjað um hæli á Íslandi af Útlendingastofnun og þá staðfesti kærunefnd útlendingamála úrskurðinn. Hann ætlar sér að sækja mál sitt fyrir dómstólum og hefur ráðið sér lögfræðing en fær ekki að vera viðstaddur málsmeðferðina.

„Í mínum huga er það að senda mig til Frakklands það sama og að senda mig til Írans. Ég fékk dauðadóm vegna þess að ég er kristinnar trúar og skil ekki hvers vegna ég er sendur á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar sem tekur fyrir að senda fólk til baka stofni það lífi þess í hættu,“ segir Morteza.

Hann hefur sett sig í hættu með því að fjalla opinskátt um mál sitt í fjölmiðlum. Hann fór í viðtöl hjá nokkrum fjölmiðlum fyrr á árinu, sum þeirra voru á ensku. „Ég þurfti að vega þetta og meta. Ég er alltaf í lífshættu verði ég sendur til Írans en mér finnst ég ekki hafa átt annarra kosta völ en að ræða um mál mitt því yfirvöld vilja ekki rannsaka það til hlítar,“ segir Morteza.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Hælisleitandi gaf meðlimum Íslensku þjóðfylkingarinnar kaffisopa



Morteza var dæmdur til dauða í Íran. Honum hefur verið synjað um hæli á Íslandi af Útlendingastofnun og þá staðfesti kærunefnd útlendingamála úrskurðinn. Hann gaf mótmælendum í Íslensku þjóðfylkingunni kaffisopa á Austurvelli í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×