Lífið

Segist hafa misst sveindóminn með geimveru

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
„Ég veit ekki mikið en ég veit að ég missti sveindóminn með konu sem var geimvera,“ segir listamaðurinn David Huggins í heimildarmyndinni Love and Saucers.

Í myndinni segist Dave, sem er sjötugur, hafa hitt geimverur margoft. Hann segist ekki hafa verið hræddur við geimverurnar og að stundum hafi þessir fundir leitt til kynferðislegra athafna. Hann veit þó ekki af hverju geimverur sækja svona í hann.

David segir að geimveran sem hafi tekið sveindóm hans hafi heitið Crescent. Hann hitti hana þegar hann var sautján ára á vappi í skógi í New York.

Brad Abrahams leikstýrir heimildarmyndinni en hún er enn í vinnslu. Brot úr henni má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×