Innlent

Segist ekki geta breytt því sem pabbi hennar hefur gert

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sara Lind Annþórsdóttir er 21 árs nýútskrifaður snyrtifræðingur. Hún er dóttir Annþórs Karlssonar, síbrotamanns, sem hefur verið í fangelsi mestallt hennar líf. Þrátt fyrir það segist Sara hafa þurft að líða fyrir að vera dóttir föður síns frá unga aldri.

Sara vill opna umræðuna um fordóma í garð aðstandenda glæpamanna og fanga hér á landi. Í gegnum tíðina telur hún sig hafa orðið fyrir aðkasti, kjaftasögum og fordómum, meðal annars frá lögreglu. Þá hefur hún margoft verið hvött til að skipta um nafn. 

Hún segist muna vel eftir því þegar hún áttaði sig fyrst á því að pabbi hennar væri glæpamaður.

„Það var sem sagt vinkona mín sem sagði mér að pabbi minn væri að fara í fangelsi. Ég hafði ekki hugmynd um neitt. Ég var níu ára og var bara að hoppa á trampólíni með vinkonu minni og það var eins og ekkert væri eðlilegra fyrir henni: „Hvað finnst þér um að pabbi þinn sé að fara í fangelsi?“ Ég fór að gráta og fór heim,“ segir Sara sem segist ekki hafa áttað sig á því að pabbi hennar væri öðruvísi en aðrir pabbar.

„Hann var bara töffari. Ég fór bara heim og spyr hana [mömmu] hvort að pabbi minn sé að fara í fangelsi og þá var hún einmitt að fara að segja mér frá því. Hver hann væri, að hann væri að fara í fangelsi og hvað hann hafði gert en það var of seint. Hún útskýrði allt fyrir mér, sagði að hann væri samt góður maður, hann þyrfti bara að fara í fangelsi og hann hefði brotið af sér.“

Þórhildur Þorkelsdóttir, fréttamaður Stöðvar 2, ræddi ítarlega við Söru Lind í dag og má sjá viðtalið við hana í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Annþór og Börkur treysta ekki íslenskum matsmönnum

Verjendur Annþórs Karlssonar og Barkar Birgissonar vilja fá erlenda sérfræðinga til að vinna matsskýrslur í líkamsárásarmáli sem leiddi til dauða. Tvímenningarnir séu of illa þokkaðir hér á landi til að hægt sé að treysta íslenskum sérfræðingum.

Máli Annþórs og Barkar frestað

Aðalmeðferð málsins átti að fara fram dagana 15. og 16. október næstkomandi en hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Skýringin er sú að erfiðleikar hafi komið upp við boðun vitna og þá sérstaklega við boðun erlendra sérfræðinga sem fengnir voru til að meta skýrslur íslenskra sérfræðinga um andlát fangans.

Annþór segir ekkert eðlilegt við þriggja ára rannsókn

Erlendu sérfræðingarnir sem fengnir voru til að meta skýrslur um andlát fanga á Litla-Hrauni hafa allir skilað niðurstöðum sínum. Niðurstöðurnar eru öndverðar niðurstöðum úr fyrri skýrslunum. Annþór harmar ákæruna.

Annþór vildi ekki mæta

Annþór Kristján Karlsson þarf að mæta fyrir dóm í dag vegna andláts Sigurðar Hólm Sigurðarsonar þrátt fyrir ósk um annað til að sleppa við "fjölmiðlafár“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×