Viðskipti innlent

Segist berjast við ofurafl með fulla vasa af peningum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigurjón Þ. Árnason fór mikinn við aðalmeðferð málsins.
Sigurjón Þ. Árnason fór mikinn við aðalmeðferð málsins. Vísir/Vilhelm
Aðalmeðferð í markaðsmisnotkunarmáli Sérstaks saksóknara á hendur fyrrverandi stjórnendum og starfsmönnum Landsbankans lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Í upphafi var gert ráð fyrir að aðalmeðferðin tæki 9 daga en hún lengdist og stóð yfir í 11 daga.

Munnlegur málflutningur saksóknara og verjenda fór fram í gær og í dag en Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri, tók svo til máls í lokin. Hann sagði að saksóknara hefði ekki tekist að sýna fram á aðkomu sína að málinu.

„Það liggur fyrir að það er ekki einn einasti hljóðfæll, tölvupóstur, fundargerð eða vitni sem staðfestir aðkomu mína að þessu máli. Það er bara akkúrat allt eins og ég sagði við yfirheyrslur árið 2011. Samt er búið að fara yfir 520 þúsund tölvupósta, taka 80 pappakassa, hlusta á 7000 símtöl, gera húsleitir og hleranir. Það finnst ekkert en samt er ákært.“

Sigurjón var, líkt og áður, gagnrýninn á embætti Sérstaks saksóknara.

„Þetta er ofurafl sem við erum að berjast við með ótakmarkaða peninga á móti okkur venjulegum fjölskyldumönnum. [...] Eins og ég þekki þetta embætti þá reyna þeir að ákæra þó að þeir hafi bara 10-20% vinningslíkur,“ sagði hann meðal annars. Hann sagði málatilbúnað ákæruvaldsins „eftiráspeki“ sem varð til eftir hrun því „það þurfi nú að klekkja á þessum bankamönnum.“

Markaðsmisnotkunarmálið er stærsta einstaka mál Sérstaks saksóknara til þessa.Vísir/Stefán
Kauphallarhermirinn er ekki sönnunarvél

Í munnlegum málflutningi gagnrýndu verjendur einnig málatilbúnað ákæruvaldsins. Notkun alræmds kauphallarhermis við aðalmeðferðina var meðal annars til umræðu. Helgi Sigurðarson, verjandi Júlíusar Steinars Heiðarssonar, sagði að með honum hefði saksóknara tekist að gera einfalda hluti óskiljanlega og flókna.

Í andsvörum sínum sagði Arnþrúður Þórarinsdóttir, saksóknari, kauphallarherminn einfaldlega sýna grunngögn úr Kauphöll Íslands á læsilegu formi. Hermirinn væri engin sönnunarvél heldur mætti þar sjá hvernig hegðunin var með viðskipti í bréfum Landsbankans á ákærutímabilinu.

„Hermirinn er settur fram til að lýsa gögnum, hann er ekki settur fram til að greina þau,“ sagði saksóknari. Hún sagði ekki þörf á að fara í ítarlegar greiningar á gögnum áður en þau væru lögð í sönnunarmat hjá dómi þar sem sönnunarbyrðin væri lögfræðileg, ekki tölfræðileg.

Arnþrúður sagði ákærðu í málinu ekki enn hafa svarað því af hverju svona mikið var keypt í bréfum Landsbankans. Hún sagði þá hafa hagað sér eins og flugstjóra í háska en í stað þess að nauðlenda hafi þeir brotið alla viðvörunarmæla.

Í andsvörum sínum ítrekuðu verjendur gagnrýni sína á kauphallarherminn og sagði Helgi hann sýna viðskiptin með myndrænum hætti á villandi hátt. Þá mótmælti Sigurður G. Guðjónsson, verjandi Sigurjóns Þ. Árnason, því að ekki væri að finna greiningu á viðskiptunum í herminum. Vísaði hann í skýrslu sem tekin var af Tómasi Philip Rúnarssyni , höfundi hermisins, sem sagði að hann hefði líka verið að greina viðskiptin og atferli þátttakenda í þeim.

Reimar Pétursson, verjandi Sindra Sveinssonar, benti svo á vitlausa útreikninga í sjálfri ákærunni og ætlaði saksóknari að fá að svara fyrir það en dómsformaður leyfði það ekki.

Málið verður nú dómtekið og verður dómur kveðinn upp innan fjögurra vikna.


Tengdar fréttir

Bankastjórinn reiddi sig á eftirlitsaðila

Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, segist hafa treyst því að Kauphöllin, FME og innra eftirlit bankans myndu láta sig vita ef eitthvað óeðliegt ætti sér stað með viðskipti bankans með eigin bréf.

Björgólfsfeðgar bera vitni

Vitnaleiðslur hefjast í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Sérstaks saksóknara gegn Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, og þremur undirmönnum hans.

Ósáttur við að vera kallaður til sem vitni

Steinþór Gunnarsson, fyrrverandi forstöðumaður verðbréfamiðlunar Landsbankans, baðst undan því að bera vitni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í markaðsmisknotkunarmáli bankans.

Þvertók fyrir að hafa haft áhrif á hlutabréfaverð

Björgólfur Thor Björgólfsson, stærsti eigandi Landsbankans fyrir hrun, kvaðst fyrir Héraðsdómi í dag hafa rætt hvernig ætti að bregðast við óveðri en ekki hvernig ætti að hafa áhrif á veðrið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×