Innlent

Segir Vigdísi beita „skítatrikkum“ á nefndarfundum

Samúel Karl Ólason skrifar
Davíð Stefánsson.
Davíð Stefánsson. Vísir/Ernir

Davíð Stefánsson, fyrrverandi varaþingmaður Vinstri grænna, segir Vigdísi Hauksdóttur, formann fjárlaganefndar, beita „skítatrikkum“ á nefndarfundum , sem ætlað sé að gera nefndarmeðlimi og fundargesti órólega. Davíð segist hafa setið fimm eða sex fundi fjárlaganefndar.

„...oft hefur mér blöskrað þegar hún hefur tekið vælinn opinberlega yfir illri meðferð á sér, mér hefur blöskrað vegna þess að ENGINN þingmaður sem ég kynntist á þessum tíma hegðaði sér jafn óþægilega, fáránlega og eineltislega eins og Vigdís Hauksdóttir,“ skrifar Davíð á Facebooksíðu sína.

Sjá einnig: Forstjóri Landsspítalans segir meirihluta fjárlaganefndar saka stjórnendur spítalans um stöðugt væl

Davíð segir Vigdísi hafa notað allar mögulegar leiðir til að gera lítið úr fólki á fundum. „Hún hnussaði hástöfum, stundi, dæsti, fórnaði höndum, greip fram í, ranghvolfdi augum, hækkaði málróminn þannig að hún beitti sér og truflaði ... hún notaði öll þessi skítatrikk sem fantar nota til að gera nærstadda órólega.“

Þá segir hann að því miður hafi það tekist. Reyndar hafi reyndari þingmenn virst leiða hana að mestu hjá sér. Staðreyndin sé hins vegar sú að „félagslegur fantur nær oft undir skinnið á fólki á lúmskan hátt“.

Davíð segir það hneyksli að Vigdís hafi fengið að vera formaður í valdamestu þingnefnd landsins jafn lengi og raun beri vitni. Færslu Davíðs má sjá hér að neðan.

Nú er nóg.Ég hef þá reynslu í farteskinu að hafa setið sem varaþingmaður VG á síðasta kjörtímabili. Ég kom nokkrum...

Posted by Davíð Stefánsson on Sunday, November 29, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×