Segir útspil Já vera klúður HV skrifar 2. febrúar 2012 19:39 Jón Hákon Magnússon segir Já hafa klúðrað að óþörfu.
Sérfræðingur í almannatengslum segir útspil Já vera klúður að óþörfu, en fyrirtækið hefur látið hanna límmiða til að líma yfir forsíðu símaskrár síðasta árs en á henni er mynd af Agli Einarssyni, öðru nafni Gillz, og fimleikastúlkum úr Gerplu. Fyrirtækið Já fékk Gillz til að hanna og prýða kápu símaskrár ársins 2011 og vakti það hörð viðbrögð hjá mörgum en hundruðir hótuðu að skrá sig úr símaskránni ef þetta yrði að veruleika. Ástæða mótmælanna var meint kvenfyrirlitning Gillz. Já stóð á sínu og Gillz prýddi forsíðuna ásamt fimleikastúlkum úr Gerplu. Egill Einarsson, maðurinn á bakvið Gillz, hefur verið kærður í tvígang fyrir kynferðisbrot á síðustu mánuðum en en ekki liggur enn fyrir hvort Egill muni verða ákærður. Já lét fyrir áramót útbúa límmiða til að koma til móts við þá viðskiptavini sína sem kjósa að sjá ekki Gillz þegar þeir taka símaskrána fram. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, vildi ekki koma í viðtal en segir fyrirtækið ekki með neinum hætti vera að taka efnislega afstöðu til málsins, sem enn er í rannsókn. Hún segir nokkra tugi viðskiptavina fyrirtækisins hafa nýtt sér þennan valkost. Jón Hákon Magnússon, sérfræðingur í almannatengslum, hefur meðal annars sérhæft sig í krísustjórnun fyrirtækja. Honum finnst aðgerðir Já mjög grófar. Hann segir að málið hljóti að skaða ímynd Já mjög mikið, allavega til skamms tíma. Fyrirtækið sé með aðgerðunum ekki að ná að klóra yfir þau meintu mistök að hafa Gillz á forsíðunni
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Sjá meira