Innlent

Segir upp samningnum um gistingu og hótelþjónustu Sjúkrahótelsins

Atli Ísleifsson skrifar
Sjúkrahótelið í Ármúla.
Sjúkrahótelið í Ármúla. Vísir/Stefán
Heilsumiðstöðin, sem rekur Sjúkrahótelið í Ármúla í Reykjavík, hefur sagt upp samningi sínum við Sjúkratryggingar um gistingu og hótelþjónustu Sjúkrahótelsins.

Í uppsagnarbréfinu sem sent var Sjúkratryggingum segir að það hryggi starfsmenn Heilsumiðstöðvarinnar að þurfa að segja upp þjónustunni, en „því miður [hafi]starfsemi Sjúkrahótelsins orðið að bitbeini á milli opinberra aðila sem takast á um hvar fjárveitingin skuli liggja. Þessir aðilar hafa skiptar skoðanir á eðli og hlutverki Sjúkrahótelsins og hefur erfiðlega gengið að miðla málum með þeim hætti að friður sé um starfsemina.“

Í bréfinu segir að annars vegar sé um að ræða skilgreiningu Sjúkratrygginga á starfsemi Sjúkrahótels sem var lagt til grundvallar útboði sem Heilsumiðstöðin tók þátt í. Þar hafi átt á að semja um hótelgistingu og fullt fæði fyrir einstaklinga sem séu færir um athafnir daglegs lífs en hafi hag af því að dvelja þar sem veitt er hjúkrunarþjónusta og tenging við það öryggi sem felst í að gista í nálægð við heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.

Hins vegar sé það afstaða Landspítalans sem „virðist vilja skilgreina starfsemina sem deild innan spítalans og þar með á forræði hans auk þess sem spítalinn vill sjálfur reka umrædda gistingu og hótelþjónustu.“

Uppsagnarfrestur er þrír mánuðir og verður starfsemin því óbreytt til 30. apríl næstkomandi.

„Það eru okkur mikil vonbrigði að ekki hafi tekist að finna betri samstarfsflöt með Landspítalanum, sem er sú stofnun sem einna mikilvægast er að við stígum í takti við. Það er von okkar að Sjúkratryggingar og Landspítali í samvinnu við Velferðarráðuneyti finni lausnir til lengri tíma sem skapi sátt og gagnist sem best þeim þúsundum einstaklinga sem á þessari þjónustu þurfa á að halda, bæði þeirra sem geta nýtt sér gistingu á Sjúkrahótels og einnig hinna veikari sem betur hentar að dvelja á sjúklingahóteli,“ segir í bréfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×