Innlent

Segir umræðuna um skipan dómara of tilfinningaknúna

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Héraðsdómari og lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík segir það vera áhyggjuefni að traust á dómstólum mælist lágt hér á landi í norrænum samanburði. Þá hafi umræðan um skipan dómara við Landsrétt verið allt of tilfinningaknúin og það sé ekki til þess fallið að auka traust á dómstólum.

Ásýnd íslenskra dómstóla var yfirskrift hátíðarmálþings Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, sem fram fór síðastliðinn mánudag. Þar fjallaði Arnar Þór Jónsson, héraðsdómari og lektor við lagadeild HR um traust í garð dómstóla. Að því er fram kom í máli Arnars mælist traust á dómstólum hér á landi talsvert lakara en í löndunum sem við gjarnan viljum bera okkur saman við.

Arnar Þór Jónsson, héraðsdómari og lektor við lagadeild HRVísir/Sigurjón
„Það er athyglisvert að þetta lága traust sem við höfum í þessum samanburði virðist lítið þokast upp á við og við stöndum mun nær hinum engilsaxnesku þjónum í þessu tilliti því miður,“ segir Arnar í samtali við Stöð 2. 

Hann segir skýringarnar eflaust vera margþættar en hann spyr sig meðal annars hvort það geti verið að íslenskir dómstólar séu að einhverju leyti öðruvísi en norrænir dómstólar. „Ég hef svarað því játandi. Í samanburði við Danmörku, eru íslenskir dómstólar mun pólitískari heldur en hinir dönsku.“ Það geti stafað af ýmsum ástæðum en til að mynda kunni að vera að löggjöf hér á landi sé einfaldlega óvandaðari en í öðrum norrænum ríkjum.

Ákvörðun dómsmálaráðherra ætti ekki að koma á óvart

„Þarf ekki að vera óvænt þó að ráðherrar vilji bara hafa áhrif á það hverjir sitja í dómstólunum. Það er kannski leiðinlegt að segja þetta en þetta er engu að síður held ég bara raunveruleiki sem við gætum bara þurft að horfast í augu við,“ segir Arnar.

Við skipan dómara við Landsrétt vék dómsmálaráðherra frá tillögu dómsnefndar og skipaði fjóra dómara sem ekki voru á lista dómnefndar líkt og þekkt er orðið. Að sögn Arnars ætti það þó ekki endilega að koma á óvart enda sé skýr heimild fyrir því í lögum að víkja frá tillögum dómnefndar samþykki Alþingi tillögu ráðherra. Þótt umræða um mál þessi séu af hinu góða að mati Arnars telur hann umræðuna aftur á móti hafa verið nokkuð óvarfærna.

„Í þessum efnum eins og öðrum þá verðum við að reyna að horfa á hlutina án misskilnings og án þess að vera með ýkjur og án þess að vera of mikið að blanda of mikið af tilfinningum inn í þetta. Við þurfum að geta horft á þetta út frá skynsemi og yfirvegaðri dómgreind,“ segir Arnar. Umræðan um skipan dómara við Landsrétt hafi aftur á móti ekki borið þess merki.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×