Segir ummæli SDG um stéttaskiptingu lýsa veruleikafirringu Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. júní 2013 19:00
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir það lýsa veruleikafirringu hjá forsætisráðherra að halda því fram að ekki hafi þrifist stéttaskipting á Íslandi. Hann furðar sig jafnframt á gagnrýni á AGS. „Ríkisstjórn með almennilegt sjálfstraust og skýra framtíðarstefnu þarf ekki á því að halda að vera að hnýta í nágrannaþjóðir eða alþjóðastofnanir á þjóðhátíðardaginn," segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar um ræðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra. Sigmundur Davíð sagði í ræðu sinni að ríkisstjórnin myndi ekki láta „alþjóðastofnun segja okkur að ekki sé hægt að gera meira fyrir íslensk heimili um leið og minnt er á mikilvægi þess að ljúka uppgjöri efnahagshrunsins.“AGS lánaði okkur gríðarlegar fjárhæðir eftir hrunið. Þessi skoðun sjóðsins að við sýnum ábyrgð í ríkisfjármálum, er hún ekki réttmæt? „Mér finnst þetta dálítið athyglisvert með hvaða hætti forsætisráðherra hnýtir í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn því sjóðurnn hefur í sjálfu sér bara verið að segja það sama og ég hef sagt og forsætisráðherrann tekið undir. Að það séu ekki til peningar í ríkissjóði til þess að borga skuldaleiðréttingar," segir Árni Páll. Árni Páll gerir athugasemdir við fleira í ræðu forsætisráðherra. Hann segir að ummæli hans um hina stéttlausu þjóð ekki standast skoðun í ljósi sögunnar á Íslandi, en orðrétt sagði forsætisráðherra: „Ísland hefur ekki verið stéttskipt á sama hátt og mörg önnur lönd og það er einn af mörgum góðum kostum þess að byggja þetta land. En það er ekki sjálfgefið að svo verði um aldur og ævi. Þess vegna þurfum við að gæta þess vel að hér verði ekki til tvær eða fleiri þjóðir í sama landi.“ „Mér finnst þetta vera rangur skilningur á íslenskri sögu og íslenskri þjóðmenningu. Hér hefur verið um aldir verið gríðarleg misskipting og hún er enn til staðar í dag. Mér finnst það sýna vissa veruleikafirringu af hálfu forsætisráðherra að gera sér ekki grein fyrir því hversu misskipt er kjörum fólks í landinu. Og þetta sýnir ekki mikinn skilning á hlutskipti þeirra sem minnst hafa á milli handanna í íslensku samfélagi í dag,“ segir Árni Páll.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira