Innlent

Segir tvö ólík atriði togast á í frumvarpi um upptökur símtala

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Helgi Hrafn segir að frumvarp Sigríðar sé áhugavert.
Helgi Hrafn segir að frumvarp Sigríðar sé áhugavert. Vísir/Vilhelm/Aðsent
„Þetta er mjög áhugavert frumvarp en tvö atriði sem togast á því; annars vegar persónuvernd og hins vegar fjölmiðlafrelsi,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, um frumvarp Sigríðar Andersen, varaþingmanns Sjálfstæðisflokks, um hljóðupptökur símtala.

Frumvarpið gengur í stuttu máli út á að þrengja undantekningarákvæði laga um hljóðupptökur símtala með þeim hætti að ekki sé heimilt að vitna í upptöku án leyfis þeirra aðila sem aðild áttu að símtalinu.

„Þarna er í raun og veru tekist á við tvo aðskilda hluti. Annar þeirra varðar hljóðritun á símtölum og heimild til að birta hana og hinn varðar rétt fórnarlambs ofbeldis þegar það hefur rökstuddan grun um að brot verði framið í símtali til sín. Þetta eru tvo mismunandi atriði,“ segir Helgi Hrafn.

„Mér finnst fyrir tilgangurinn talsvert flóknari. Þarna togast á persónuverndarsjónarmið og réttindi uppljóstrara og blaðamanna,“ segir hann og bendir á að Björt framtíð og Píratar hafi lagt fram frumvarp um vernd uppljóstrara. „Ég get ekki akkúrat núna hvort ég sé hlynntur eða á móti frumvarpinu, það er eitthvað sem þarf að skoða í samhengi við uppljóstrunarlög.“

Sigríður Andersen segir að tilgang frumvarpsins sé að taka af allan vafa um upptökur símtala. 

„Tilgangurinn er að skýra stöðu viðmælenda símtala þar sem mögulega er verið að taka upp,“ segir. „Ég hef fullan skilning á því að fjölmiðlar taki upp símtöl og tel að það sé æskilegt en ég tel hins vegar að það sé sanngjarnt og eðlilegt að viðmælendur viti af því fyrir fram að þau verði tekin upp eða að vitnað er til þeirra orðrétt.“

Hún segir að útilokað sé að ætla öllum viðmælendum, til dæmis blaðamanna, að þeim megi vera ljóst að símtöl séu hljóðrituð. „Ég held að það sé ekki,“ segir hún. „Þess vegna tel ég að það eigi að taka af öll tvímæli um þetta.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×