Innlent

Segir tvo „talíbana“ taka Alþingi í gíslingu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Össur Skarphéðinsson, Jón Gunnarsson og Páll Jóhann Pálsson.
Össur Skarphéðinsson, Jón Gunnarsson og Páll Jóhann Pálsson. vísir
Hart er nú deilt á Alþingi vegna ákvörðunar Einars K. Guðfinnssonar, forseta þingsins, um að fella starfsáætlun þess úr gildi.

Beina útsendingu frá Alþingi þar sem sýður á þingmönnum má sjá hér að neðan

Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru vægast sagt ósáttir við að starfsáætlun sé breytt án þess að fyrir liggi hve lengi Alþingi eigi að lifa fram á sumar og vandaði Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, forseta ekki kveðjurnar:

„Ég hef aldrei heyrt forseta þingsins ávarpa þingið með þeim hætti sem hann gerði núna. Hann veit ekki hvenær á að hafa eldhúsdag, hann veit ekki hvenær þingi á að ljúka og hann veit ekki hvenær þessum fundi hér á að ljúka. [...] Hæstvirtur forseti segir að hann verði að lúta veruleikanum en hver er veruleiki hæstvirts forseta? Eru það þessir tveir talíbanar sem halda þinginu í gíslingu hér? Er ekki kominn tími til þess að hæstvirtur forseti fari að hugsa okkur um hin sem líka sitjum hér og eigum líka okkar rétt? Er ekki bara næst hjá hæstvirtum forseta að segja af sér ef hann er í reynd að lýsa því yfir að hann hefur ekki lengur stjórn á þinginu? Hann hefur ekki einu sinni stjórn á tveimur mönnum sem hafa tekið þingið herskildi?“

Stjórnarandstaðan vill umræðu um rammaáætlun af dagskrá þingsins og hefur ítrekað lagt fram tillögu þess efnis seinustu daga. Tillagan hefur jafnan verið felld af stjórnarmeirihlutanum og hafa þingmenn stjórnarandstöðunnar fjölmennt í ræðustól og rætt fundarstjórn forseta.

Segja fundinn til málamynda

Má leiða að því líkum að talíbanarnir tveir sem Össur nefnir í ræðu sinni séu Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, og Páll Jóhann Pálsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í nefndinni. Búið er að boða fund í atvinnuveganefnd í fyrramálið, laugardag, vegna rammaáætlunarinnar en engu að síður á að halda umræðu um áætlunina áfram í dag. Því mótmælir stjórnarandstaðan og segir að fundurinn í nefndinni sé bara til málamynda.

Nú rétt í þessu kvaddi Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sér hljóðs um boðaðan fund í atvinnuveganefnd en heyrðist þá í formanni nefndarinnar að búið væri að fresta fundinum. Sagði Oddný af þessu tilefni að Jón væri greinilega orðinn hæstráðandi í þinginu og undir þau orð tók samflokkskona hennar, Valgerður Bjarnadóttir, og spurði:

„Er þetta trúðaleikhús eða Alþingi Íslendinga?“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×