Lífið

Segir skilið við skuggana

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Hinn írski Jamie Dornan hefur fengið nóg af skuggunum fimmtíu.
Hinn írski Jamie Dornan hefur fengið nóg af skuggunum fimmtíu. vísir/getty
Jamie Dornan, aðalleikari 50 Shades of Grey, hefur tilkynnt að hann ætli ekki að leika í framhaldsmyndunum tveimur. Dornan segir ástæðuna vera að eiginkona hans til tveggja ára, Amelia Warner, sé mjög ósátt við grófu kynlífsatriðin sem Dornan þurfti að leika í á móti Dakota Johnson.

Aðdáendur leikarans brugðust illa við og setti einn þeirra athugasemd á Twitter með kassamerkinu #whipped og sagði að hann ætti bara að skilja við konuna, ef hún væri svona ósátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×