Innlent

Segir Sigurð hafa komið rann­sókninni efnis­lega af stað

Björgvin G. Sigurðsson.
Björgvin G. Sigurðsson.

Björgvin G. Sigurðsson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir skýrslugjöf Sigurðar Inga Þórðarsonar varpa skýrara ljósi á málsatvik er tengjast stóra FBI-málinu svokallaða. Nefndin kannar málið þar sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra afturkallaði svokallaða réttarbeiðni FBI mannanna þegar þeir voru hér á landi sumarið 2011.

Ögmundur leit svo á að þeir væru hér á landi að rannsaka Wikileaks á fölskum forsendum. Ríkislögreglustjóri og ríkissaksóknari segja rannsóknina á Wikileaks þó sömu lögreglurannsókn og þá sem tengdist tölvuárásinni, og upprunalega beiðnin snérist um. Þarna er því ákveðinn meiningarmunur á milli ráðuneytis og embættismannanna.

Björgvin segir skýrslu Sigurðar meðal annars varpa ljósi á uppruna málsins, „hann setti sig í samband við bandaríska sendiráðið og bandarísku alríkislögregluna og kom málinu efnislega af stað," segir Björgvin í samtali við fréttastofu og vísar til þess að Sigurður gaf sig fram í bandaríska sendiráðinu í júní árið 2011 og hélt því fram að hann byggi yfir upplýsingum um yfirvofandi tölvuárás Lulzec hópsins svokallaða, sem átti að beinast að stjórnarráðinu.

Í kjölfarið samþykkti innanríkisráðuneytið réttarbeiðni handa fulltrúum FBI til þess að athafna sig hér á landi. Þá voru allar tölvuvarnir stórefldar eins og fram kom í máli Jóns Bjartmarz, yfirlögregluþjóns hjá ríkislögreglustjóra, þegar nefndin kom síðasta saman. Hann sagðist þá trúa því að árásinni hefði verið afstýrt.

Björgvin segir vitnisburð Sigurðar sýna það með enn skýrari hætti að starfsmenn FBI hefðu verið hér á fölskum forsendum þegar þeir tóku fjölmörg viðtöl við Sigurð hér á landi í ágúst sumarið 2011. Björgvin áréttaði einnig að Sigurður hefði afþakkað aðstoð íslenskra yfirvalda vegna þessara viðtala sem tóku tugi klukkustunda og áttu sér stað víðsvega um heiminn að sögn Björgvins.

Björgvin segir Sigurð ennfremur hafa staðfest það sem Ögmundur sagði á Alþingi, og Vísir hafði áður greint frá, að bandaríska alríkislögreglan hefði reynt að nota hann sem tálbeitu gegn Wikileaks. Björgvin bætti svo við að hann teldi að Ögmundur hefði brugðist hárrétt við í málinu með því að endurnýja ekki réttarbeiðnina. Þá telur hann ekki að trúnaðarbrestur hafi orðið á milli ráðuneytisins og ríkissaksóknara og ríkislögreglustjóra.

Þess má geta að rannsóknin vegna tölvuárásarinnar er enn í rannsókn hjá ríkislögreglustjóra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×