Viðskipti innlent

Segir sérstakan saksóknara stunda nornaveiðar

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar

„Þessi ákæra er röng og ég er saklaus“ segir Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings banka, en ákæra gegn honum og tveimur öðrum stjórnendum bankans var þingfest í héraðsdómi í morgun. Hann segir málið vera fáránlegt og sakar sérstakan saksóknara um að stunda nornaveiðar.



Ákæra á hendur fyrrverandi stjórnendum Kaupþings, þeim Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og Magnúsi Guðmundssyni var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þremenningarnir eru ákærðir fyrir umboðssvik vegna lánveitinga til eignarhaldsfélaga sem keyptu skuldatryggingar á Kaupþing í aðdraganda hrunsins en lánin voru samkvæmt ákæru veitt til að hafa áhrif á skuldatryggingu Kaupþings og þannig lækka fjármagnskostnað bankans. Telur ákæruvaldið að ákærðu hafi með háttsemi sinni valdið Kaupþingi gríðarlegu og fáheyrðu fjártjóni.



Samkvæmt ákæru sérstaks saksóknara tapaði Kaupþing 510 milljónum evra, tæpum 80 milljörðum íslenskra króna á viðskiptunum. Brot ákærðu eru talin stórfelld.



Hreiðar Már Sigurðsson var viðstaddur þingfestingu málsins í dag en dómari gaf honum kost á að tjá sig um sakargiftir málsins.



„Háttvirtur dómur. Ég starfaði hjá Kaupþingi í 15 ár, þar af 10 sem forstjóri. Ég tók aldrei ákvörðun gegn hagsmunum bankans. Ákæran er röng og ég er saklaus.“



Verjandi Hreiðars fór fram á það fyrir héraðsdómi í dag að málinu yrði vísað frá dómi.



„Það er á grundvelli brota við rannsókn málsins. Meðal annars að samtöl mín og verjanda míns voru hleruð og það eru klár brot á mannréttindasáttmálum og stjórnarskránni og við teljum að þetta eigi að valda frávísun málsins.”



Hreiðar gagnrýnir embætti sérstaks saksóknara harðlega.



„Það er á nornaveiðum. Það er búið að eyða yfir 6.000 milljónum, eftir því sem ég best veit. Embættið er sett upp til að fara á eftir bankamönnum. Ég vil benda þjóðinni á það að það eru einungis bankastjórar einkabankanna sem voru ákærðir. Það er eins og allt óheiðarlega fólkið hafi unnið í einkabönkum, en allt heiðarlega fólkið hjá hinu opinbera. Þetta er bara fáránlegt. Þetta er hvergi annars staðar í heiminum sem þetta á sér stað sem er að eiga sér stað hérna á Íslandi. En sannleikurinn mun koma í ljós.”

 


Tengdar fréttir

Sakaðir um umboðssvik vegna lána til vildarvina

Ákæra á hendur fyrrverandi stjórnendum Kaupþings, þeim Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og Magnúsi Guðmundssyni fyrir umboðssvik, verður þingfest í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×