Innlent

Segir Schengen-samstarfið ónýtt

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Karl Garðarsson.
Karl Garðarsson. vísir/gva
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknar, segir að endurskoða þurfi Schengen-samstarfið. Með breyttum aðstæðum og auknum fólksflótta sé það komið í algjört uppnám. Mikilvægt sé að taka umræðuna áður en málin komist í óefni.

„Schengen samstarfið sem slíkt er ekki að virka í dag og nánast ónýtt ef út í það er farið. Hér streyma inn á Schengen svæðið þúsundir manna á degi hverjum, án þess að vera með vegabréf eða áritanir,” sagði Karl í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Hann ræddi málið einnig á Alþingi í dag.

Hann sagði flóttafólk ekki vandamálið – að þeim þurfi þjóðir heims að hlúa. Heldur sé það sá hópur sem leiti til ríkja Evrópusambandsins og Schengen í efnahagslegum tilgangi. Sá hópur fari sífellt stækkandi.

„Margir þessara einstaklinga eru að flýja stríð og því ber okkur að taka á móti þeim þó ekki sé nema af mannúðarástæðum. Aðrir nýta sér ástandið í efnahagslegum tilgangi, vilja betra líf í vestrænum löndum, hærri laun, betra bótakerfi og svo framvegis.”

Karl sagði stöðuna í Schengen orðna þannig að einstök ríki innan þess séu farin að búa til sínar eigin reglur, setja upp tálma á landamærum, herða reglur um vegabréf og fangelsa fólk. „Nýjasta dæmið er Svíþjóð sem var í fararbroddi fyrir tveimur árum þegar kom að móttöku flóttamanna,” sagði hann. „Ekkert fer að draga úr flóttamannastraumi á næstunni eða á næstu árum. Það vita allir. Af hverju tökum við ekki upp alvöru umræðu um Schengen í stað þess að ýta vandræðunum á undan okkur þar til allt er komið í óefni?”

Hlusta má á viðtalið við Karl hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×