Innlent

Segir óraunveruleg veikindi ekki rétta baráttuleið

sunna karen sigurþo´rsdóttir skrifar
„Ég ætla að leyfa mér að halda það að í það minnsta einhverjir þeirra séu veikir,” segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna.
„Ég ætla að leyfa mér að halda það að í það minnsta einhverjir þeirra séu veikir,” segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna.
Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, segir að draga megi þá ályktun að ekki sé um raunveruleg veikindi lögreglumannanna að ræða. Hann segist sýna málinu skilning en segir þetta ekki rétta baráttuleið.

„Ég ætla ekki að setja mig í dómarasæti. En miðað við það sem fram kemur í bréfi fjármálaráðuneytisins má draga þá ályktun en ég ætla að leyfa mér að halda það að í það minnsta einhverjir þeirra séu veikir,” segir Snorri.

Lögreglumenn langþreyttir

Aðspurður hvort þetta sé rétt leið til að takast á við vandann, segir hann að aðgerðirnar séu ekki á vegum sambandsins. „Hvað hver einstakur lögreglumaður gerir prívat og persónulega verður viðkomandi að svara sjálfur. Samantekin ráð, jú það má til sanns vegar færa að sé ekki skynsamleg aðgerð en við höfum hvatt lögreglumenn til að fara í öllu löglega í þessum efnum,” útskýrir Snorri.

„Lögreglumenn eru orðnir langþreyttir á endalausum svikum loforða stjórnmálamanna í sinn garð í tengslum við kjarasamninga og svo framvegis. Ég er margítrekað búinn að benda stjórnvöldum og stjórnarandstöðuþingmönnum á að þetta sé pottur sem bullsýður í og að fyrr eða síðar muni sjóða upp úr.”

Orðrómurinn reyndist sannur

Þá segir Snorri lögreglumenn bálreiða yfir bréfi fjármálaráðuneytisins, þar sem Landssambandi lögreglumanna var hótað málsókn, gripi lögreglumenn til þessara ráða.

„Ég er eiginlega forviða yfir þessu að ráðuneytið skuli voga sér að senda okkur svona bréf. Þeir byggja upplýsingarnar á bréfinu á einhverjum orðrómi og einhverju spjalli ótiltekinna aðila á Facebook. Sendu okkur bréf sem er bein hótun um lögsókn á hendur félaginu og mér þar af leiðandi sem forsvarsmanni þess, án þess að hafa nokkuð fyrir sér í því annað en orðróm einhvern.”

En orðrómurinn reyndist þó sannur?

„Það hefur komið í ljós í dag að orðrómurinn var sannur. Mögulega hefði maður skilið það að fá svona bréf frá ráðuneytinu í dag en en að fá það fyrir fram með hótunum um lögsókn byggt á einhverjum orðrómi er algjörlega með ólíkindum,“ segir Snorri.

Aðspurður um næstu skref, segir hann framtíðina verða að leiða það í ljós. Honum þyki þó heldur ólíklegt að lögreglumenn komi sér upp úr veikindunum á næstu dögum.

„Ég leyfi mér að stórefast um það. Ég veit það að bréf ráðuneytisins hefur farið þvert ofan í lögreglumenn og þeir eru ævareiðir stjórnvöldum fyrir að voga sér að senda Landssambandinu bréf með þessum hætti. Þannig að þetta bréf ráðuneytisins, hvort sem að það er skrifað með vitund eða vilja ráðherra sjálfs, sem ég reyndar efast um þó það sé skrifað í hans umboði og hann þar af leiðandi ber ábyrgð á bréfinu, þá er það þannig að það hefur valdið meiri vandræðum heldur en nokkurn tímann hefði gerst ef það hefði látið óskrifað.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×