Innlent

Segir Ólaf Ragnar skipa sér á bekk með Mugabe

Höskuldur Kári Schram skrifar
Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi segir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti sé með ákvörðun sinni um að gefa kost á sér á ný að skipa sér á bekk með þaulsetnustu forsetum heims á borð við Mugabe. Hún gefur lítið fyrir rök forseta um óvissuástand í samfélaginu og segir að hann hefði átt að sýna öðrum frambjóðendum virðingu með því að vera heiðarlegur í sínu máli.

Halla lýsti yfir framboði 17. mars síðastliðinn en í dag opnaði hún kosningamiðstöð sína að Hæðasmára í Kópavogi.

Hún segist ekki hafa íhugað að draga framboð sitt til baka eftir að Ólafur Ragnar ákvað að gefa kost á sér á ný.

„Ég tel að [ákvörðun Ólafs] muni skerpa línurnar í þessari kosningabaráttu. Þetta er lýðræðislegur réttur hans af því að við erum ekki búin að skýra leikreglurnar og setja mörk á það hversu lengi forseti Íslands má sitja. En ég er óneitanlega ekki stolt af því að sitjandi forseti skuli skipa sér á bekk með einræðisherrum eins og Mugabe,“ segir Halla.

Hún gefur lítið fyrir rök Ólafs um ríkjandi óvissu í íslensku samfélagi og segir að hann ætti frekar að vera heiðarlegur og sýna öðrum virðingu með því að viðurkenna að hann vilji einfaldlega vera forseti áfram.

„Ég held að hann hafi verið að segja þessa hluti frá því ég var í sex ára bekk. Ég man fyrst að hann talaði um óvissu og ótta þegar ég var í sex ára bekk. Ég er að verða fimmtug núna. Ég held að hann hafi fengið fullt af tækifærum í nógu langan tíma til að sýna hvað hann getur lagt af mörkum. Nú er kominn tími á nýjan tón og skipta um plötu á fóninum og horfa til framtíðar,“ segir Halla. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×