Innlent

Segir Ögmund vera verkkvíðinn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Vigdís Hauksdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson
Vigdís Hauksdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson
„Ég tel það vera útilokað að nefndin komist að niðurstöðu í málinu fyrir þinglok,“ segir Ögmundur Jónasson, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, um skýrslu Vigdísar Hauksdóttur. Skýrsluna kallaði hún „Einkavæðing bankanna hin síðari“.

Ögmundur bendir á að ráðgert sé að ljúka þingstörfum á fimmtudaginn. „Samkvæmt lögum um rannsóknarnefndir bæri okkur að senda okkar tillögur til stjórnar þingsins sem síðan gæfi okkur sín viðbrögð. Að því búnu yrði málið sent til umræðu inni í þinginu. Til þessa gefst enginn tími,“ segir hann.

Hann bendir á til samanburðar erindi sem nefndinni hafi borist frá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra, um það hvort forsendur væru fyrir því að þingið gengist fyrir rannsókn á plastbarkamálinu svokallaða. „Við erum þegar búin að kalla til okkar fjölda aðila og erum að safna gögnum. Við skrifuðum heilbrigðisráðherra fyrir fáeinum dögum og sögðum að það væri útilokað tímans vegna að klára málið fyrir þinglok. Hið sama gegnir að mínu mati um þetta mál,“ segir Ögmundur.

Ögmundur Jónasson
Vigdís segir að sér finnist Ögmundur lýsa miklum verk­kvíða að geta ekki boðað til fundar í nefndinni til að taka málið fyrir, núna þegar búið er að senda það til nefndarinnar til umfjöllunar. „Þannig að ég lýsi yfir miklum vonbrigðum með þetta vinnulag og þetta sýnir hvað það er óheppilegt að hafa ráðherra úr fyrri ríkisstjórn sem formann nefndarinnar. Hann er að mínu mati vanhæfur til að fjalla um málið,“ segir hún.

Vigdís telur þó að málið muni ekki daga uppi, jafnvel þó ekki verði fjallað um það á þessu þingi. „Það gerir það ekki út af því að ég sendi afrit af þessu máli á umboðsmann Alþingis. „Hann verður þá að dekka þetta mál og hefja þá vinnu, ef, af pólitískum forsendum, fyrrverandi ráðherra úr þessari ríkisstjórn tekur það ekki upp.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×