Viðskipti innlent

Segir mestu skipta að enginn peningur fór úr bankanum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Bjarki Diego mætir í héraðsdóm í morgun.
Bjarki Diego mætir í héraðsdóm í morgun. Vísir/Ernir
Bjarki Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri útlána hjá Kaupþingi, segist aldrei hafa tekið ákvörðun um að veita eignarhaldsfélögunum Holt og Desulo lán til að kaupa hlutabréf í bankanum. Hann er ákærður í markaðsmisnotkunarmáli sem sérstakur saksóknari hefur höfðað gegn níu fyrrverandi stjórnendum og starfsmönnum Kaupþings.

Bjarka er gefin að sök hlutdeild í umboðssvikum vegna lánanna til Holt og Desulo en hann á að hafa farið út fyrir heimildir sínar og stefnt fjármunum bankans í verulega hættu. Bjarki hafnar þessu og segir mestu máli skipta að fjármunir fóru aldrei út úr bankanum. Þeir hafi einfaldlega verið færðir á milli kerfa innan bankans.

 

Ekki lánveiting

Spurður út í lánveitinguna til Holt og tölvupóst sem hann sendi til starfsmanns fjárstýringar vegna lánsins sagði Bjarki:

 

„Þetta er ekki lánveiting. Ég er þarna að staðfesta að það megi færa fjármuni inn í Infinity-kerfi bankans. Það fara engir peningar að fara út úr bankanum.”

 

Saksóknari spurði þá hvenær hann vissi bankinn ætlaði að lána fyrir hlutabréfakaupunum.

 

„Skuldbindingin verður til þegar viðskiptin eiga sér stað þann 8. febrúar og uppgjörið á að fara fram 15. febrúar. Daginn áður hittumst við lánanefnd samstæðunnar á fundi og samþykkjum að senda lánið til lánanefndar stjórnar til samþykkis,” sagði Bjarki.

 

Peningur ekki greiddur út

Hann áréttaði það svo að peningur hafi ekki verið greiddur út úr bankanum og það hafi í raun ekki verið búið að taka ákvörðun um lánveitingu.

Saksóknari reyndi þá að fá fram hvernig hann vissi að bankinn ætlaði að lána fyrir hlutabréfakaupunum. Bjarki sagðist ekki vita það en sagði óumdeilt í málinu að Skúla Þorvaldssyni, eiganda Holt, hefði verið boðin fjármögnun vegna kaupanna.

 

„Það er kannski deilt um það hver nákvæmlega gaf þetta vilyrði um fjármögnunina en það er óumdeilt að það var búið að tala við Skúla um að hann ætti að fá þessa fjármögnun,” sagði Bjarki.

 

Saksóknari sagði þá að enginn kannaðist við að hafa tekið ákvörðun um að veita lánið.

 

„Ég get ekki svarað um það en ég tók þá ákvörðun ekki,” svaraði Bjarki.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×