Innlent

Segir mál stúlkunnar á Akranesi því miður ekki einsdæmi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
„Mér finnst það blasa við að það hafi verið mjög alvarlega brotið á þessari stúlku og ég vona innilega að hún vinni þetta mál. Að mínu mati er þessi líkamsleit bara hreint og klárt ofbeldi,“ segir Pétur Þorsteinsson, formaður Snarrótarinnar.
„Mér finnst það blasa við að það hafi verið mjög alvarlega brotið á þessari stúlku og ég vona innilega að hún vinni þetta mál. Að mínu mati er þessi líkamsleit bara hreint og klárt ofbeldi,“ segir Pétur Þorsteinsson, formaður Snarrótarinnar. vísir
Pétur Þorsteinsson, formaður Snarrótarinnar, samtaka um borgaraleg réttindi, segir mál 16 ára stúlku sem var handtekin og henni gert að afklæðast svo hægt væri að leita að fíkniefnum á henni því miður ekki einsdæmi. Samtökin þekki fjölmörg dæmi þar sem svo virðist sem að lögreglan hafi farið út fyrir valdsvið sitt, ekki síst þegar grunur leiki á að ungt fólk, hafi neytt fíkniefna eða sé með fíkniefni á sér.

„Mér finnst það blasa við að það hafi verið mjög alvarlega brotið á þessari stúlku og ég vona innilega að hún vinni þetta mál. Að mínu mati er þessi líkamsleit bara hreint og klárt ofbeldi,“ segir Pétur í samtali við Vísi.

Pétur segir málið mikið alvarlegra í stóra samhenginu.

„Menn setja spurningamerki við að ekki hafi verið kallað til fulltrúa barnaverndar á Akranesi þegar líkamsleitin fór fram en mér finnst tvö atriði alvarlegust í þessu. Annars vegar er það að lögreglan skuli hafa nafnlausan síma sem menn geta hringt í og fellt grun á hvern sem er og lögreglan hlaupi svo bara á eftir því án þess að hafa neitt annað í höndunum. Hins vegar er það svo að það er með öllu óheimilt að framkvæma svona leit án dómsúrskurðar. Lögreglan er þarna að taka sér vald langt umfram það sem hún hefur,“ segir Pétur.

Samkvæmt lögregluskýrslu í máli unglingsstúlkunnar á Akranesi, sem var rituð 22 dögum eftir að atvikið, fékk lögreglan á Vesturlandi nafnlausa ábendingu þess efnis að fíkniefni væri að finna í bíl sem stúlkan var farþegi í og að ökumaður bílsins væri undir áhrifum fíkniefna.

Í kjölfarið var hún og aðrir í bílnum færðir á lögreglustöð þar sem stúlkunni var sagt að afklæðast og beygja sig fram svo hægt væri að skoða kynfæri henni og rass án snertingar. Engin fíkniefni fundust.


Tengdar fréttir

Vill fá skýringar á aðförum lögreglunnar

Ekki var hringt í sólarhringsvakt barnaverndar á Akranesi þegar sextán ára stúlka var handtekin í ágúst og henni gert að afklæðast. Bæjarstjóri segir málið koma sér í opna skjöldu. Lögreglustjórinn á Vesturlandi tjáir sig ekki um m

Létu 16 ára stúlku afklæðast á Akranesi

Nafnlaus ábending um fíkniefnavörslu varð til þess að ungmenni voru handtekin á Vesturlandi. Leitað var innanklæða á 16 ára stúlku. Hvorki var haft samband við foreldra stúlkunnar né barnaverndaryfirvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×