Viðskipti erlent

Segir kröfu Grikkja vera „heimskulega“

Samúel Karl Ólason skrifar
SIgmar Gabriel.
SIgmar Gabriel. Vísir/EPA
Efnahagsráðherra Þýskalands segir 278,7 milljarða evru, bótakröfu Grikklands vegna seinni heimstyrjaldarinnar vera „heimskulega“. Krafan, sem er upp á rúmlega 40 þúsund milljarða króna, er tilkomin vegna láns sem nasistar neyddu Grikki til að veita Þýskalandi. Stjórnarandstaðan í Þýskalandi segir að þeim beri að greiða lánið til baka.

Dimitris Mardas, fjármálaráðherra Grikklands, lagði fram kröfuna í gær. Málinu fylgja miklar tilfinningar í Grikklandi, en margir íbúar landsins kenna Þjóðverjum um þann mikla niðurskurð sem Grikkir hafa gengið í gegnum.

Samkvæmt frétt á vef Reuters telja yfirvöld í Þýskalandi að þeir hafi staðið við skuldbindingar sínar. Meðal annars með 115 milljarða marka greiðslu til Grikklands árið 1960. Talsmaður fjármálaráðherra Þýskalands segir afstöðu þeirra ekki hafa breyst.

Sigmar Gabriel, efnahagsráðherra Þýskalands og vara-kanslari, að krafan væri heimskuleg. Hann sagði núverandi deilur ríkjanna ekki koma seinni heimstyrjöldinni við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×