Innlent

Segir kannabisrækt verið eytt með ólögum

Sveinn Arnarsson skrifar
Kannabisræktun Jóhannesar var til lyfjagerðar, að hans sögn.
Kannabisræktun Jóhannesar var til lyfjagerðar, að hans sögn. mynd/lögreglan

Kannabis­ræktun Jóhannes­ar Bjarma­sonar, fram­kvæmda­stjóra Gæðafóðurs, var stöðvuð á bænum Hæringsstöðum í Svarfaðar­dal á mánudaginn var. Einnig var lagt hald á eitrað natríum­klórít í heimahúsi á Akureyri þar sem Jóhannes bjó til lyfjaskammta, meðal annars fyrir krabbameinssjúklinga.

Hann telur lögreglu hafa eyðilagt dýrmæt tæki, stundað spellvirki á eigum sínum og eyðilagt vörumerki sitt. Gunnar Jóhannsson, rannsóknarlögreglumaður á Akureyri, segir starfshætti lögreglunnar í þessu máli líka og í öllum öðrum sambærilegum málum. „Í Svarfaðardal átti sér stað ræktun á kannabisplöntum sem er ekki leyfileg samkvæmt lögum. Á Akureyri var verið að blanda saman eitruðum efnum til inntöku fyrir sjúklinga, sem er einnig í andstöðu við lög. Því réðst lögreglan í þessar aðgerðir,“ segir Gunnar.

Fullyrðir að efni sín hafi lækningarmátt

„Lögreglan gekk hreint til verks og eyðilagði fyrir mér tól og tæki upp á um sjö milljónir. Það er ekkert ólöglegt sem ég er að gera í þessu því ég er bara að rækta plöntu til að búa til úr henni olíu. Menn geta ekki sagt að það sé ólöglegt á nokkurn hátt,“ segir Jóhannes. Einnig stöðvaði lögreglan lyfjagerð Jóhannesar í húsi á Akureyri þar sem hann blandaði saman vatni, sítrónusýru og efni sem nefnist natríumklórít. Þetta kallar Jóhannes ACD. Natríumklóríð er venjulegt matarsalt en natríum­klórít er mun sterkara efni.

Í tilkynningu frá sóttvarnalækni árið 2010 um svipuð lyf segir að engin vísindaleg gögn liggi fyrir sem styðji notkun efnisins við sjúkdómum. Natríumklórít geti hins vegar skaðað fólk gríðarlega.

Jóhannes vísar þessum full­yrðingum til föðurhúsanna og segir efnið sitt, ACD, drepa malaríu á innan við fjórum klukkustundum og einnig lækna krabbamein og alnæmi.

„Ég myndi ekki segja að þetta sé eitthvað töframeðal fyrir krabbameinssjúklinga en ég get sagt með vissu að þetta hefur læknað hundrað þeirra sem ég þekki. Flensa og ­malaría deyr í líkamanum á innan við fjórum klukkustundum eftir inntöku. Það eru bara sýklalyfjaframleiðendur sem vilja banna þetta. Þetta gerir öllum gott. Ef hampolían mín og ACD-lyfið væri leyft væri hægt að loka öllum ­apótekum landsins,“ segir Jóhannes. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×