Erlent

Segir Johnny Depp hafa barið sig

Samúel Karl Ólason skrifar
Amber Heard og Johnny Depp.
Amber Heard og Johnny Depp. Vísir/Getty

Amber Heard segir eiginmann sinn Johnny Depp hafa beitt sig ofbeldi og fer fram á nálgunarbann gegn honum. Hún sótti einnig um skilnað á dögunum. Leikkonan mætti í réttarsal í dag samkvæmt TMZ, en þar er því haldið fram að hún hafi verið með myndir af áverkum sem Depp er sagður hafa veitt henni á meðan á hjónabandi þeirra hefur staðið.



TMZ birtir einnig mynd af Heard þar sem hún virðist marin í kringum augað. Heard og Depp giftu sig í febrúar í fyrra.



Fyrr í dag var sagt frá því í miðlum erlendis að Depp vildi ljúka skilnaðinum af eins fljótt og auðið væri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×