Erlent

Segir Ísraela fremja þjóðarmorð á Gasa

Ingvar Haraldsson skrifar
Yfir hundrað palestínskir borgarar og þrettán ísraelskir hermenn féllu á sunnudag, sem er mesta mannfall á einum degi frá því átökin hófust.
Yfir hundrað palestínskir borgarar og þrettán ísraelskir hermenn féllu á sunnudag, sem er mesta mannfall á einum degi frá því átökin hófust. nordicphotos/afp
„Ísraelar eru að fremja þjóðarmorð og þjóðernishreinsanir á Palestínumönnum,“ segir Mustafa Barghouti um atburði síðustu daga á Gasa.

Barghouti er palestínskur læknir og stjórnmálamaður sem rekið hefur hjálparsamtök í Palestínu í áratugi. Hann var þar að auki tilnefndur til friðarverðlauna Nóbels árið 2010.

Í gær var blóðugasti dagurinn á Gasa frá því að átök hófust þann 8. júlí síðastliðinn. Um hundrað palestínskir borgarar féllu og þrettán ísraelskir hermenn á Gasa um helgina.

Mustafa Barghouti
Í hverfinu Shejaiya í Gasaborg, sem er að mestu byggt flóttamönnum, segir Barghouti að fjöldamorð hafi verið framið á yfir sextíu Palestínumönnum: „Flestir þeirra sem dóu voru konur og börn. Ísraelski herinn sprengdi upp allt hverfið með skriðdrekum, stórskotaliði og loftárásum. Ísraelar sprengdu einnig tvo sjúkrabíla í loft upp sem reyndu að koma særðum út úr hverfinu.“

Hverfið er gjörónýtt og Sameinuðu þjóðirnar segja áttatíu þúsund manns nú vera á vergangi á Gasa. Baghouti segir: „Fólkið sem nú er á flótta er það sama og var rekið af heimilum sínum árið 1948 og hefur orðið flóttafólk oftar á ævinni en hægt er að koma tölu á.“ 

Barghouti segir hjálparstarf vera mjög erfitt á Gasa. „Við reynum að sinna slösuðum en það er skortur á öllum nauðsynjum. Okkur vantar lyf, vatn og eldsneyti, auk þess sem rafmagnslaust er nær alls staðar á Gasa. Hér ríkir algjört neyðarástand,“ segir 

Barghouti en yfir þrjú þúsund hafa særst og yfir fjögur hundruð Palestínumenn látist í átökunum.

Barghouti gefur lítið fyrir útskýringar Ísraelsmanna á að þeir séu að stöðva skot flugskeyta til Ísrael. „Árásir helgarinnar eru ekki árásir á Hamas-samtökin heldur árás á alla Palestínumenn. Þeir særðu og látnu eru ekki Hamas-liðar, þetta eru óbreyttir palestínskir borgarar. Níutíu prósent þeirra látnu eru saklausir borgarar og tveir þriðju eru konur og börn.“

Barghouti kallar eftir því að lýsa þurfi vopnahléi samstundis og opna landamæri Gasa fyrir Palestínumönnum. Þar að auki segir Barghouti: „Ísraelar þurfa að láta af hernámi sínu á Palestínu sem breyst hefur í kerfi aðskilnaðar og kynþáttamismununar.“ 

Til að það gerist segir Barghouti að beita þurfi Ísraela þrýstingi. „Alþjóðasamfélagið þarf að setja viðskiptaþvinganir á Ísraela líkt og gert var í Suður-Afríku vegna aðskilnaðarstefnunnar.“

Algjör eyðilegging Hverfið Shejaiya er gjörónýtt eftir sprengjuregn ísraelska hersins.nordicphotos/afp



Fleiri fréttir

Sjá meira


×