Innlent

Segir íbúðirnar sniðnar að fyrstu kaupendum

Hersir Aron Ólafsson skrifar
Íbúðir í fyrsta fjölbýlishúsinu í nýrri Hlíðarendabyggð voru sýndar í dag. Verðið er frá tæpum fjörutíu milljónum króna en framkvæmdastjóri segir einblínt á fyrstu kaupendur. Fyrirhugað er að um 800 íbúðir rísi á svæðinu á næstu árum.

Um verður að ræða blandaða byggð þjónustu á neðstu hæðum og íbúðarrýma á þeim efri. Brynjar Harðarson, framkvæmdastjóri Valsmanna hf. sem að uppbyggingunni stendur, segir að markhópurinn sé skýr.

„Í þessari byggingu eru það klárlega fyrstu kaupendur. Þetta er eina húsið í hverfinu sem er ekki með bílageymslu, heldur bara stæðum fyrir utan,“ segir Brynjar.

Algengt verð á 60 fermetra íbúðum í húsinu er um og yfir 40 milljónir króna.

Þetta er ekki ókeypis.

„Neinei, það hefur aldrei verið ókeypis að kaupa íbúðir á Íslandi og ég held að svo verði ekki í framtíðinni. Þetta er mjög vandað, við leggjum mikið í hönnun og bygginguna alla,“ segir Brynjar.

Mannlíf eða flugvöllur?

Segja má að svæðið sé rammað inn af íþróttasvæðinu við Hlíðarenda, Hringbraut og auðvitað Reykjavíkurflugvelli. En á Brynjar von á að byggðin gæti teygt sig þangað í framtíðinni?

„Það kæmi mér ekkert á óvart þegar þessi uppbygging kemur, að þetta fari jafnvel að snúast í þá átt að menn vilji sjá hér meiri byggð. Meira mannlíf og meiri byggð fólks heldur en flugvöll sem tekur í dag 120 hektara í miðborg Reykjavíkur.“

Hann bendir þó á að hverfið sé þegar vel tengt miðborg og Hlíðum með undirgöngum og brúm auk þess sem verslun og þjónusta verði innan hverfis. Nokkur vegalengd er þó í næstu skóla, Austurbæjar- og Hlíðaskóla en ekki liggur endanlega fyrir hvernig leikskólamálum verður háttað.

„Vonandi leysum við það bara hérna innan Hlíðarendareits og höfum alla möguleika á. Uppbyggingin er hafin og ég hugsa að Hlíðarendareitur verði orðinn uppbyggður innan fjögurra ára,“ segir Brynjar að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×