Innlent

Segir Hlín hafa leitað á bráðamóttöku vegna meintrar nauðgunar

Birgir Olgeirsson skrifar
Malín Brand.
Malín Brand. Vísir/Vilhelm
Malín Brand hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna seinna fjárkúgunarmálsins. Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa hún og systir hennar, Hlín Einarsdóttir, verið kærðar fyrir að kúga fé út úr manni sem þær sökuðu um að hafa nauðgað Hlín.

Sjá einnig: Systurnar handteknar og yfirheyrðar á ný

Malín segir málsatvik seinna málsins hafa verið með þeim hætti að Hlín hafi hringt í hana að kvöldi laugardagsins 4. apríl síðastliðinn í miklu uppnámi. „Og sagði mér að sér hefði verið nauðgað af fyrrverandi samstarfsfélaga sínum. Hún velti þá fyrir sér að kæra manninn. Hann reyndi að ná sambandi við hana daginn eftir en hún vildi ekki tala við hann. Í kjölfarið áttum við samskipti þar sem ég lýsti reiði minni en hann lagði áherslu, samkvæmt mínum skilningi, á að fá hana til að kæra ekki,“ segir Malín í þessari yfirlýsingu.

Hlín Einarsdóttir.Vísir/Valli
Segir systur sína hafa leitað á bráðamóttöku

Hún segir Hlín hafa beðið hana um að aka sig á bráðamóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis þar sem Hlín fékk aðhlynningu og skoðun. Malín segir starfsfólk hafa metið það svo að ástand Hlínar benti til að hún hefði orðið fyrir nauðgun.

„Maðurinn lagði áherslu á að mannorðs síns vegna myndi nauðgunarkæra, hvort sem hún leiddi til ákæru og sakfellingar eða ekki, valda sér miklum hnekki,“ skrifar Malín sem segir systur hennar hafa fallist á þessi sjónarmið og segir sátt hafa orðið um greiðslu miskabóta. 

Sjá einnig: Sökuðu manninn um að hafa nauðgað Hlín

Segir um sátt að ræða en ekki kvittun

„Upphæð bótanna var hennar tillaga. Samskiptin fóru í gegnum mig því systir mín treysti sér ekki til að eiga þau. Eins og fram hefur komið veitti ég sáttafénu viðtöku fyrir hönd systur minnar og kom því áfram til hennar. Sáttin var handskrifuð í tveimur eintökum sem aðilar undirrituðu, annars vegar viðkomandi og hins vegar ég fyrir hönd systur minnar, þar sem hver hélt eftir sínu eintaki. Upphæðin kom þar m.a. fram en ekki var um kvittun að ræða,“ skrifar Malín.

Hún segist leggja áherslu á að hún vilji ekki stuðla að því að flekka mannorð nokkurs manns. Ekki megi sakfella neinn fyrr en mál hafa verið að fullu rannsökuð. „Mein brot mannsins er alvarlegt, rétt eins og aðkoma mín að brot systur minnar gagnvart forsætisráðherra og fjölskyldu hans. Mér þykir óskaplega leitt að hafa valdið þessu fólki skaða.“

Yfirlýsingu Malínar má lesa í heild hér fyrir neðan: 

Vegna fréttaflutnings fjölmiðla vil ég koma eftirfarandi á framfæri:

Málsatvik í seinna málinu sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum voru eftirfarandi. Að kvöldi laugardagsins 4. apríl sl. hringdi Hlín systir mín í mig í miklu uppnámi og sagði mér að sér hafi verið nauðgað af fyrrverandi samstarfsfélaga sínum. Hún velti þá fyrir sér að kæra manninn. Hann reyndi að ná sambandi við hana daginn eftir en hún vildi ekki tala við hann. Í kjölfarið áttum við samskipti þar sem ég lýsti reiði minni en hann lagði áherslu, samkvæmt mínum skilningi, á að fá hana til að kæra ekki.

Á þriðjudeginum bað Hlín mig að keyra sig á bráðamótttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis þar sem hún fékk aðhlynningu og skoðun. Ástand hennar að mati starfsfólks þar benti til að hún hefði orðið fyrir nauðgun. Maðurinn lagði áherslu á að mannorðs síns vegna myndi nauðgunarkæra, hvort sem hún leiddi til ákæru og sakfellingar eða ekki, valda sér miklum hnekki. Systir mín féllst á þessi sjónarmið og úr varð sátt með greiðslu miskabóta. Upphæð bótanna var hennar tillaga. Samskiptin fóru í gegnum mig því systir mín treysti sér ekki til að eiga þau. Eins og fram hefur komið veitti ég sáttafénu viðtöku fyrir hönd systur minnar og kom því áfram til hennar. Sáttin var handskrifuð í tveimur eintökum sem aðilar undirrituðu, annars vegar viðkomandi og hins vegar ég fyrir hönd systur minnar, þar sem hver hélt eftir sínu eintaki. Upphæðin kom þar m.a. fram en ekki var um kvittun að ræða.

Ég legg áherslu á að ég vil ekki stuðla að því að flekka mannorð nokkurs manns. Ekki má sakfella neinn fyrr en mál hafa verið að fullu rannsökuð. Meint brot mannsins er alvarlegt, rétt eins og aðkoma mín að broti systur minnar gagnvart forsætisráðherra og fjölskyldu hans. Mér þykir óskaplega leitt að hafa valdið þessu fólki skaða.

Virðingarfyllst,

Malín Brand


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×