Viðskipti innlent

Segir fyrirtæki eins og CCP mikilvæg fyrir íslenskt hagkerfi

Samúel Karl Ólason skrifar
Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Vísir/Anton
„Við vitum ekki til þess að nokkur ákvörðun hafi verið tekin um að flytja  CCP  úr landi, eins og fréttir á  Vísi  og Fréttablaðinu gefa til kynna,“ segir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann segir að það liggi hins vegar fyrir að í alþjóðlegum fyrirtækjum sem  CCP  sé alltaf einhver hreyfing á einstökum hlutum starfsemi á milli landa og ekkert sé óeðlilegt við það.



„Fyrirtæki líkt og  CCP  eru ákaflega mikilvæg fyrir íslenskt hagkerfi. Það má nefna sem dæmi að fyrirtækið veltir í kringum 10 milljarða og þeirra lang stærsti kostnaðarliður er launakostnaður sem allt samfélagið nýtur góðs af í gegnum launaskatta, þá sér í lagi þar sem þetta eru hálaunastörf. Svona fyrirtæki skapa líka eftirsóknarverð og alþjóðlega samkeppnishæf störf fyrir unga fólkið okkar.“



Þetta kemur fram í svari SI við fyrirspurn Vísis. Almar segir að í heild sinni velti upplýsingatækniiðnaðurinn hér á landi 80 milljörðum og vöxtur hans sé meiri en meðal hagvöxtur.



„Stuðningur stjórnvalda við að skapa þessum fyrirtækjum hagstæða umgjörð skiptir miklu máli. Við þurfum fjölbreyttan iðnað á Íslandi og eigum í því samhengi ekki síst að leggja áherslu á  þekkingardrifnar  greinar með miklum  skalanleika .“



Gjaldeyrishöflin skapa ótrúverðuga mynd

Af þeim 80 milljörðum sem  UT  geirinn veltir segir Almar að  CCP  sé með nærri einn áttunda. Því sé fyrirtækið mikilvægt fyrir íslenskt hagkerfi.



„Það er staðreynd sem ekki er hægt að líta  fram hjá . Við eigum í mjög góðu samstarfi við stjórnvöld og finnum ekki annað en að þar sé mikill áhugi á að bæta frekar umhverfi þessara fyrirtækja.“



Þar að auki segir Almar að gjaldeyrishöftin séu truflandi og skapi  ótrúverðuga  mynd af Íslandi sem góðum stað fyrir þekkingarfyrirtæki.



„Þess vegna er mikilvægt að höft verði afnumin hratt. Þannig höldum við mikilvægum fyrirtækjum með fjölbreytta starfsemi í landinu og sköpum grundvöll fyrir  breiða  flóru fjölbreyttra  þekkingarfyrirtækja  á Íslandi.“


Tengdar fréttir

CCP eins og stór fiskur í lítilli tjörn

Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og fyrrverandi stjórnarformaður CCP, segir mikilvægt að ríghalda ekki í stórfyrirtæki þegar þau vilja flytja höfuðstöðvar sínar úr landi. Gjaldeyrishöft eigi ekki stóran þátt í ákvörðun.

Hluti starfsemi CCP verði fluttur úr landi

Í skoðun er að flytja hluta starfsemi tölvufyrirtækisins CCP úr landi. Alþjóðlegir samningar og gjaldeyrishöft ástæðan. Ísland mundi þó áfram gegna lykilhlutverki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×