Formúla 1

Segir frásögn af bata Schumacher uppspuna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Í dag er eitt ár liðið frá því að Michael Schumacher hlaut alvarleg höfuðáverka í skíðaslysi í Frakklandi en takmarkaðar upplýsingar hafa borist af bata hans.

Schumacher, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, á fyrir höndum langt bataferli en fulltrúar hans hafa gætt þess að hleypa ekki fjölmiðlum of nærri honum eða fjölskyldu hans.

Philippe Streiff, fyrrum ökumaður í Formúlu 1, sagði í viðtali við Le Parisien dagblaðið um helgina að Schumacher væri byrjaður að geta borið kennsl á fjölskyldumeðlimi sína en að hann gæti ekki enn talað.

Enn fremur sagði Streiff að Schumacher væri með afar takmarkaða hreyfigetu en væri að vinna í því geta setið uppréttur og að markmið hans væri að geta einn daginn gengið með því að styðja sig við hækjur.

Streiff er sjálfur lamaður eftir alvarlegt slys í Formúlunni árið 1989 en hann segist hafa fengið upplýsingarnar frá ónefndum tengilið sem þekkir eiginkonu Schumacher, Corinne, og taugalækni hans, Gerard Saillant.

Sabine Kehm, umboðsmaður Schumacher, sagði þó að Streiff væri ekki náinn vinur Schumacher og hefði engin tengsl haft við neinn sem þekkir til ástands Schumachers.


Tengdar fréttir

Schumacher haldið sofandi | Berst fyrir lífi sínu

Læknar Michael Schumacher í Frakklandi segja að hann sé með alvarlega áverka á heila eftir skíðaslys í gærmorgun. Hann gekkst undir aðgerð en er enn í lífshættu. Schumacher er haldið sofandi á gjörgæslu.

Schumacher í skíðaslysi

Franskir fjölmiðlar greina frá því að ökuþórinn Michael Schumacher hafi slasast í skíðaslysi þar í landi.

Schumacher í lífshættu

Michael Schumacher, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, er í lífshættu eftir skíðaslys í morgun. Honum er haldið sofandi í öndunarvél og telja læknar að hann hafi hlotið alvarlegan heilaskaða.

Ástand Schumachers hefur batnað | Enn í lífshættu

Læknar Michael Schumachers á sjúkrahúsinu í Grenoble í Frakklandi segja að ástand hans hafi skánað örlítið frá því í gær. Honum er þó enn haldið sofandi og ástand hans alvarlegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×