Viðskipti erlent

Segir ESB græða á einangrunarstefnu Trump

Samúel Karl Ólason skrifar
Cecilia Malmstrom.
Cecilia Malmstrom. Vísir/Epa
Andstaða ríkisstjórnar Donald Trump gegn fríverslunarsamningum og frjálsum viðskiptum hafa leitt til þess að margar þjóðir, sem telja einangrunarstefnu ekki réttu leiðina, líta nú til Evrópu. Þetta segir Cecilia Malmstrom, meðlimur í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og æðsti embættismaður sambandsins þegar kemur að viðskiptum.

Nú þegar er ESB í viðræðum við næstum öll ríkin sem komu að Trans-Pacific Partnership fríverslunarsamningnum. Donald Trump dró Bandaríkin úr samningnum í janúar.

Frá því að Trump var kjörinn forseti hefur ESB hafði samningaviðræður við Mexíkó, Mercosur (viðskiptasamband Suður-Ameríku) og Japan. Undirbúningur fyrir viðræður við Ástralíu og Nýja Sjáland er hafinn og búið er að gera samning við Víetnam.

Samkvæmt AFP fréttaveitunni varaði Malmstrom Trump við því að setja á háa tolla á innfluttar vörur í Bandaríkjunum. Hún sagði augljóst að hann vildi standa við það sem hann lofaði í kosningabaráttunni, en hætta væri á því að önnur ríki myndu bregðast við og grípa til eigin aðgerða. Það gæti reynst slæmt fyrir hagkerfi margra ríkja og íbúa þeirra.

„Ef þetta nær svo langt, verður enginn sigurvegari,“ sagði Malmstrom.

Andstæða gegn fríverslunarsamningum hefur einnig aukist innan ESB. Mótmæli hafa verið haldin og embættismönnum sambandsins tókst naumlega að samþykkja fríverslunarsamning við Kanada í október eftir að íbúar í Vallónar í Belgíu settu sig upp á móti því.

Malmstrom segir ljóst að ríki innan Evrópusambandsins hafi ekki staðið sig nægilega vel í að styðja við íbúa sem hafi tapað á aukinni hnattvæðingu og tilfærslu starfa á milli ríkja. Hún sagði það þó vera að breytast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×