Innlent

Segir engan hafa „pikkað upp“ komu Piu í tilkynningu

Hersir Aron Ólafsson skrifar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, gat ekki samvisku sinnar vegna mætt á hátíðarfundinn.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, gat ekki samvisku sinnar vegna mætt á hátíðarfundinn. Fréttablaðið/Anton
Þingflokksformaður Pírata segir að ekki hafi verið haft samráð við flokkinn um komu Piu Kjærsgaard á hátíðarfund Alþingis á miðvikudag, þrátt fyrir að koma hennar hafi verið boðuð í fréttatilkynningu í apríl. Þingmaður Vinstri grænna telur málflutninginn ótrúverðugan og segir þingmenn þurfa að taka ábyrgð á sjálfum sér.

Sniðgengu fundinn vegna Kjærsgaard

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata og Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG, voru meðal gesta Kristjáns Kristjánssonar í Sprengisandi í morgun. Þórhildur Sunna segir þingmenn Pírata undanfarna daga hafa legið yfir því hvernig koma danska þingforsetans Piu Kjærsgaard var skipulögð, en Píratar sniðgengu fundinn vegna hennar, og vísuðu til hræðilegra og andlýðræðislegra skoðana Kjærsgaard, þá sérstaklega í innflytjendamálum.

„Það sem við komumst svona næst er að í ágúst í fyrra, ef ég man rétt, þá hafi forseti fengið umboð frá þingflokksformönnum og forsætisnefnd þess tíma til þess að skipuleggja þennan fund nánar. Þar kom fram í fundargerð forsætisnefndar að það yrði mögulega ávarp frá erlendum gestum. Svo var þar innan sviga að mögulega yrði það danski þingforsetinn,“ segir Þórhildur Sunna.

Sami fulltrúi Pírata í nefndinni

Kolbeinn gagnrýnir málflutninginn og telur ólíklegt að Píratar hafi ekkert vitað af komu Kjærsgaard.

„Þetta er búið að liggja fyrir síðan í ágúst í fyrra. Þetta er ekki eins og Steingrímur hafi verið einn í Danmörku í apríl. Þetta var ferð forsætisnefndar og svo fer hann og hittir Piu. Það átti öllum sem virkilega voru eitthvað að velta þessu fyrir sér að vera það ljóst sem sátu í þessum nefndum. Ég veit ekki betur en að það hafi verið sami fulltrúi Pírata sem sat þá, Jón Þór Ólafsson,“ segir Kolbeinn.

Þórhildur Sunna segir að betra samráð hefði þurft að eiga sér stað inni á sjálfu Alþingi.

Birt neðst í lítilli fréttatilkynningu

„Svo hefur verið vísað í það að það birtist þarna einhver lítil fréttatilkynning undir yfirskriftinni að forseti Alþingis hefði sagt danska þjóðþinginu frá hátíðarhöldunum vegna 100 ára afmælisins og þar neðst kemur fram að Pia Kjærsgaard muni flytja ávarp, jújú, það kemur fram. En það pikkar það enginn upp, ekki við og ekki neinn að mér vitandi,“ segir Þórhildur Sunna.

„Mér finnst þetta narratíf sem er búið að vera að búa til, eins og það hafi verið eitthvað agenda hjá fyrst Unni Brá og svo Steingrími J. Sigfússyni, að lauma Piu Kjærsgaard inn og halda því leyndu fram á síðustu stundu. Ég verð bara að segja það, þetta er ekki trúverðugt, bara því miður, og mér finnst að fólk verði aðeins að taka ábyrgð á sjálfu sér,“ segir Kolbeinn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×