Innlent

Segir ekki nema þriðjung ráðherra skilja brot af skýrslu Frosta

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, furðar sig á skýrslu Frosta Sigurjónssonar, formanns efnahagsnefndar Alþingis, og segir ekki nema þriðjung ráðherra skilja brot af skýrslunni, sem rituð sé á afar flókinni hagfræðiensku.

Þetta segir Össur á Facebook-síðu sinni. Hann furðar sig jafnframt á því að tillögunum hafi verið skilað inn þrátt fyrir að meirihluti starfshópsins hefði verið ósammála þeim, líkt og greint var frá í Kastljósi í kvöld. Þar sagði Frosti það vissulega draga úr trúverðugleika skýrslunnar en vonaðist eftir frekari umræðum.

Sjá einnig: Fyrir neðan virðingu Alþingis að taka við skýrslu á ensku

Í sömu færslu kallar Össur eftir svörum frá forsætisráðherra um hvernig pöntun skýrslunnar hefði verið háttað. „Forsætisráðherra pantaði skýrsluna en hvorki kom fram hvort pöntunin var lögð fram í gegnum sms eins og styrkveitingar hans – né af hvaða fjárlagalið hann tók þær fjórar milljur sem herlegheitin kostuðu,“ skrifaði Össur.

Færslu hans má sjá í heild hér fyrir neðan.

Hvers á Tina systir að gjalda?Ég dáist að elju og þrautseigju Frosta Sigurjónssonar, alþingismanns, sem í dag gaf út t...

Posted by Össur Skarphéðinsson on 31. mars 2015
Rætt var við Frosta Sigurjónsson í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×